Hamar og Fsu áttust við í hörkuleik síðastliðið mánudagskvöld. Leikurinn var gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið en verið var að berjast um annað sæti deildarinar, sem gefur heimavallarétt í umspili um sæti í Úrvalsdeild. Liðin voru hnífjöfn í byrjun leiks, þar sem amerískir leikmenn liðanna fóru hamförum, Pryor hjá Fsu og Julian hjá Hamri. Staðan í hálfleik 40-47 fyrir Hamar, eftir glæsilega flautukörfu frá kjörísprinsinum Bjarna. Í síðari hálfleik fóru svo Hamarsmenn fyrst í gang, þeir bjuggu til gott forskot og unnu að lokum þægilegan sigur 79-98. Julian var sem fyrr stigahæðstur með 41 stig og 11 fráköst, en Bjarni og Þorsteinn skoruðu báðir 16 stig og tóku 8 fráköst, Sigurður var svo með 15 stig og spilaði frábæra vörn á 3 stiga skyttuna og methafann Ara Gylfason. Hamar er því í öðru sæti á innbyrgðis viðureign með jafnmörg stig og FSu. Næsti leikur er svo föstudaginn 28 feb móti toppliði Hattar.
Tag Archive for: Forsíða
Það fór þó aldrei svo að strákarnir okkar í 7. flokki karla næðu ekki að springa út á heimavelli. Fyrir helgina hafði flokkurinn ekki unnið leik í b – riðli heldur haldið sér uppi á því að fjölgað var í riðlinum á milli móta, en strákarnir sýndu svo sannarlega að þeir eiga fullt erindi á þetta getu stig og gott betur. Strákarnir unnu Grindavík (38-44), Stjörnuna (33-27) og Skallagrím (37-26) en þurftu að játa sig sigraða gegn Njarðvík (33-35) eftir tvíframlengdan leik þar sem fjöldi vítaskota á lokasekúntum leiksins fór forgörðum hjá okkar drengjum. En þrátt fyrir þetta tap þá fer Hamar áfram þar sem Njarðvík hafði tapað fyrir Stjörnuni með tveimur stigum og Hamar unnið Stjörnuna með sex stigum og því ljóst að Njarðvík varð að vinna með fimm stigum. Leikurinn gegn Njarðvík var hinsvegar gríðarlega skemmtilegur og spennandi og alveg óhætt að segja að þetta sé einn af þeim leikjum sem strákarnir læra eitthvað af. Nú er það því ljóst að Hamarsstrákrnir munu spila í A – riðli helgina 11.-12. apríl og framundan stífar æfingar til að mæta sem best undirbúnir fyrir lokaúrslitinn í íslandsmótinu.
Það er alveg öruggt í hópíþróttum að ef lið nær upp samheldni og baráttu í sínum hóp þá er alltaf meiri líkur en minni á jákvæðum úrslitum (speki dagsins). Fyrir tæpum tveimur mánuðum spilaði Hamar við KR í vesturbæ Reykjavíkur og tapaði með rétt tæplega fimmtíu stiga mun, úrslit sem enginn vildi muna eftir og því spurning af hverju greinahöfundur er að rifja þau upp. Jú í gær mættu stelpurnar í Hamri aftur í vesturbæinn með allt annað hugarfar og sóttu stigin tvö sem í boði voru, það var áberandi í þessum leik að liðsheildinn var fyrir öllu burðarliðar í stigaskorun undanfarinna leikja voru ekki alveg að setja stig á töfluna en í staðin steig allt liðið upp og spilaði flottan varnarleik þar sem allar voru á sömu blaðsíðu og lögðu sín lóð á vogarskálarnar. Það er jú gömul saga og ný að til að vinna í boltaleik þá þarftu að skora meira en hitt liðið og ef sóknin er eitthvað að hiksta þá er það varnarleikurinn sem gildir til að vinna og það sýndu stelpurnar okkar sannarlega á móti KR. Frábær sigur og nú eru komnir þrír sigurleikir í röð og nánast hægt að segja að Hamarsstúlkur séu lausar við falldrauginn og geti einbeitt sér að því að hafa gaman af því að spila og halda áfram að styrkja þá liðsheild sem virðist vera að myndast hjá kvennaliði okkar Hvergerðinga, áfram Hamar J
Tölfræði einstakra leikmanna
Kristrún Rut Antonsdóttir 2 stig / 1 frákast
Þórunn Bjarnadóttir 3 stig / 3 fráköst / 3 stoðsendingar
Salbjörg (Dalla) R Sævarsd 12 stig / 8 fráköst / 1 stoðsendingar
Sóley Guðgeirsdóttir 5 stig / 7 fráköst / 4 varinn skot
Heiða B. Valdimarsdóttir 4 stig / 6 fráköst
Sydnei Moss 24 stig / 5 fráköst / 2 varinn skot
Hafdís Ellertsdóttir 8 stig / 6 fráköst
Strákarnir okkar í 7. Flokk fara vel af stað á þriðju helgi íslandsmótsins, mótið er haldið í Hamarshöllinni bæði laugardag og sunnudag og hafa okkar menn farið vel af stað með sigrum á Grindavík og Stjörnunni. Strákarnir eru að keppa í b – riðli sem er annar sterkasti riðill í þeirra aldurhópi og því gríðarlega gaman fyrir strákna að byrja svona vel á heimavelli. Á morgun (sunnudaginn 8. Feb) eru strákarnir svo að spila seinni tvo leikina sína og þá ræðst hvar þeir enda í b – riðlinum.
Hveragerðisbær heiðraði milli jóla og nýárs íþróttamenn úr bæjarfélaginu sem staðið hafa sig vel á árinu 2014. Ragnar Nathanealson og Kristrún Rut Antonsdóttir fengu viðurkenningu fyrir góðan árangur á körfuboltavellinum sl. ár.
Kristrún Rut hefur verið fastamaður í Hamarsliðinu í Dominosdeildinni 2014 og hlaut viðurkenningu fyrir það og fyrir knattspyrnuiðkun sína þar sem Kristrún Rut, ásamst liði Selfoss, náði í bikarúrslitin 2014. Kristrún var fastamaður í liði Selfoss í Pepsídeild líkt og í Dominosdeildinni með Hamri.
Ragnar hefur verið áberandi á vellinum allt síðasta ár. Hann hefur verið það öflugar með Þór Þorlákshöfn í Dominosdeildinni að atvinnumennskan var handan við hornið og spilar Ragnar í dag með Sundsvall Dragons í Svíþjóð. Ragnar var fastamaður í A-landsliðinu okkar sem vann sér rétt til þátttöku í úrslitum evrópukeppninnar, sem frægt er orðið. Systir Ragnars tók við viðurkenningu fh. bróður síns og er á myndinni ásamt Kristrúnu.
Nú þegar árið er senn á enda er ekki úr vegi að líta yfir sviðið. Í heildina hefur starf deilda Hamars gengið vel á árinu. Heildarfjöldi iðkenda heldur áfram að vaxa og er svo komið að aldrei í sögu félagsins hafa fleiri iðkendur stundað íþróttir hjá deildum Hamars.
Aðstaðan hefur verið bætt jafnt og þétt, þó að alltaf megi gera betur einhvers staðar.
Á haustmánuðum kom upp sú umræða, á fundi fræðslunefndar, (að frumkvæði Sævars Þór Helgasonar aðstoðarskólastjóra) að koma fyrir dúk í miðju lofti á salnum í íþróttahúsinu. Dúknum væri hægt að slaka niður eftir þörfum og gæfi þetta möguleika á því að skipta salnum upp. Með þessari lausn myndi aðbúnaður til íþróttakennslu bætast til mikilla muna, ásamt því að fjölga tímum í íþróttahúsinu.
Stjórn Hamars tók undir þessa góðu ábendingu og fylgdi hugmyndinni eftir á árlegum fundi með bæjayfirvöldum. Það var því mikið ánægjuefni að þetta skyldi rata inn í fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar fyrir árið 2015.
Undir merkjum Hamars eru reknar sex deildir og þar að auki rekur Hamar Laugasport heilsurækt.
Að hafa þetta fjölbreytt úrval í ekki stærra bæjarfélagi er nánast einsdæmi á landsvísu. Það væri lífsins ómögulegt að halda svo fjölbreyttu starfi úti ef ekki væri fyrir ötult starf margra fórnfúsra sjálboðaliða. Mig langar að vitna í afbragðsgóðan leiðara um sjálboðaliðastarf sem birtist í Morgunblaðinu fyrir skemmstu.
„Starf sjálfboðaliða er ekki aðeins að finna í íþróttahreyfingunni. Sjálfboðaliðar starfa fyrir Rauða krossinn og björgunarsveitirnar, leggja hönd á plóg í kirkjustarfi, telja fugla og svo mætti halda lengi áfram. Sjálfboðaliðar halda í raun mörgum þáttum samfélagsins gangandi og verður starf þeirra seint ofmetið. Aðalhagfræðingur Englandsbanka, Andy Haldane, leiddi í fyrirlestri í haust getum að því að sjálboðaliðar á Bretlandi væru um 15 milljónir og ynnu 4,4 milljarða klukkustunda á ári. Það væri um það bil einn tíundi launaðra vinnustunda í landinu á ári. Þarna miðaði hann eingöngu við formlegt sjálfboðaliðastarf, en umfangið væri sennilega mun meira.
Hagfræðingurinn taldi að virði þeirrar vöru og þjónustu, sem sjálboðaliðar framleiddu, gæti verið um 40 milljarðar punda (7.800 milljarðar króna) á ári. Félagslegi ábatinn af sjálfboðaliðastarfi væri gríðarlegur, tvisvar til tíu sinnum meiri en efnahagslegi ábatinn. Sagði hann að líta mætti á sjálboðaliðastarf sem „einn af mikilvægustu geirum samfélagsins“ .“
Þessi samantekt er ágætis áminning um það gríðalega mikla sjálboðaliðstarf sem fer fram í íþróttahreyfingunni og víðar á hverjum degi og mikilvægi þess fyrir samfélagið.
Fyrir hönd stjórnar Hamars vil ég þakka fyrir samstarfið á árinu sem er að líða og senda okkar bestu óskir um gleðileg jól, farsæld og hamingju á nýju ári
Áfram Hamar!
Hjalti Helgason, formaður Hamars
Stjórn körfuknattleiksdeildar Hamars hefur ákveðið að segja upp samningi sínum við Ara Gunnarsson þjálfara meistaraflokks karla. Körfuknattleiksdeild Hamars vill þakka Ara fyrir samstarfið og óska honum velfarnaðar á nýju ári. Hallgrímur Brynjólfsson mun taka við liðinu út tímabilið ásamt því að stýra kvenna liði félagsins og mun Oddur Benediktsson verða honum til aðstoðar.
Körfuknattleiksdeild Hamars óskar öllum Hamarsmönnum nær og fjær sem og landsmönnum öllum gleðilegrar jólahátíðar með þökk fyrir stuðninginn og samstarfið á árinu sem er að líða.
Áfram Hamar!
Á morgun fimmtudag verður sannkallaður stórleikur hjá strákunum þegar þeir heimsækja FSu í Iðu á Selfossi. Suðurlandsslagur af bestu gerð en þegar þessi tvö lið mætast er alltaf mikil dramatík og spenna. Liðin mættust í október í deildinni í frystikistunni og fóru þá strákarnir okkar með sigur 84-78
Hamar og FSu eru að berjast á toppi deildarinnar og eru í öðru og þriðja sæti með 14 stig eftir níu leiki. Höttur er í fyrsta sæti með 16 stig en þeir hafa leikið einum leik meira en Suðurlandsliðin.
Það verður enginn svikinn af því að mæta á þennan toppslag í Iðu á morgun. Hvetjum alla Hvergerðina og Hamarsmenn að fjölmenna og styðja strákana sem ætla sér að enda árið með stæl
Áfram Hamar!
Mynd: Jónas H. Ottósson.










