Miðlar Hamars – Vilt þú vera með?

Býr í þér hæfileiki sem þú myndir vilja deila með Hamri?

Við í Íþróttafélaginu Hamri erum að leita að áhugasömum sjálfboðaliðum sem vilja hjálpa okkur að gera fjölbreytt og öflugt starf félagsins sýnilegra fyrir íbúa Hveragerðis.

Það er ótrúlega margt spennandi að gerast innan Hamars á hverjum degi. Sögur sem vert er að segja, fólk sem vert er að kynnast og viðburðir sem okkur langar að fleiri viti af.

En hvernig komum við þessum fréttum betur áleiðis? Hvernig náum við til sem flestra og tryggjum að starf félagsins fái þá athygli sem það á skilið?

Þar gætir þú komið til sögunnar!

Ertu flink(ur) á Facebook eða Instagram?
Hefur þú gaman af því að taka viðtöl og segja sögur?
Finnst þér skemmtilegt að skrifa fréttir og greinar?
Hefur þú áhuga á ljósmyndun eða myndbandagerð?
Kanntu að halda utan um heimasíður og miðla upplýsingum?
Hefur þú reynslu af útgáfu, uppsetningu eða prentun fréttablaða?
Eða hefur þú einfaldlega góðar hugmyndir um hvernig við getum gert betur?

Við viljum gjarnan heyra frá þér!

Við erum ekki endilega að leita að sérfræðingum, heldur fólki með áhuga, hugmyndir og vilja til að leggja sitt af mörkum sem sjálfboðaliði. Framlagið getur verið stórt eða smátt, allt eftir tíma og áhuga hvers og eins.
Okkur langar að byggja upp öflugan hóp sem hjálpar okkur að segja söguna af Hamri, miðla fréttum, vekja athygli á því góða starfi sem fram fer og styrkja tengsl félagsins við samfélagið okkar.
Hamar er félagið okkar allra og saman getum við gert gott starf enn sýnilegra.
Hefur þú áhuga á að vera með? Hafðu þá endilega samband við okkur!
Sendu póst á netfangið hamarsport@hamarsport.is