Stúlkur úr 5. bekk spiluðu sitt fyrsta mót í vetur í Þorlákshöfn. Mótið heppnaðist mjög vel þar sem margar af stelpunum voru að spila á sínu fyrst íslandsmóti og var augljós bæting á milli leikja. Birkir Máni þjálfari þeirra sagði einmitt að besti leikurinn þeirra hefði verið síðasti leikurinn þar sem þær spiluðu gegn sterkasta liðinu og byrjuðu okkar stelpur frábærlega 10 – 0 en svo hrukku Stjörnustelpurnar í gagn og höfðu sigur að lokum. Flott helgi þar sem þær spiluðu fjóra leiki í næst besta riðli og voru sér og félaginu til sóma.

Strákarnir í 5. bekk spiluð sitt mót í Garðabænum og stóðu sig líkt og stelpurnar með miklum sóma. A liðið spilaði í C riðli þar sem þeir enduðu í 3.-4. sæti, unnu tvo leiki og töpuðu tveimur, jafnir Fylki að stigum. Ekki er hægt að sleppa umjöllun um helgina án þess að minnast á síðasta leikinn þar sem Elvar setti flautukörfu fyrir sigri á Breiðablik, frábær leikur. B liðið okkar spilaði í D riðli þar sem þeir enduðu í 3.-5. sæti, unnu einn leik en töpuðu þremur. Þess skal þó getið að stærsti hluti B liðs var úr fjórða bekk og fengu þeir dýrmæta reynslu að spila á íslandsmóti.

Strákarnir í 6. bekk spiluðu helgina 18.-19. sept í Grafarvoginum. Strákarnir spiluðu virkilega vel og unna alla fjóra leikina, þrír unnust nokkuð örugglega en háspenna var í leik við Keflavík sem endaði á að vinnast með einu stigi. Frábær hópur þar sem allir strákarnir spila líka með 7. Flokki og fá þannig auka reynslu sem án efa mun nýtast þeim þegar þeir mæta sterkari liðum í B riðli á næsta móti. Flottir drengir og framtíðin björt.

Stelpurnar í 6. bekk spiluð einnig helgina 18.-19. sept og fór mótið fram að Laugarvatni. Stelpurnar spiluðu í B riðli og áttu frábæra helgi þar sem þær unnu alla sína leiki örugglega. Þetta þýðir að stelpurnar eru komnar í A riðil og spila meðal sex bestu liða á landinu í sínum aldurshópi. Flottur hópur sem verður gaman að fylgjast með í vetur.

Strákarnir í 7. flokki spiluð síðustöu helgi í Fylkisheimilinu og stóðu sig með stakri prýði. Laugardagurinn var smá brekka en greinilegt að allir höfðu borðað grautinn sinn á sunndagsmorgun þar sem þeir gerðu sér lítið fyrir og unnu báða leikna þann daginn. Efnilegir strákar þarna á ferðinni sem við getum sannarlega verið stolt af.

Stelpurnar í 7. flokki spiluðu á Selfossi og gekk alveg ljómandi vel hjá þeim. Þær spiluðu fjóra leiki þar sem þrír unnust nokkuð örugglega og spiluð því hreinan úrslitaleik við Breiðablik um að komast upp úr D riðldi. Því miður tapaðist sá leikur með tveimur stigum en stelpurnar mega samt vera virkilega stoltar af sinni framistöðu þessa helgina, sérstaklega þegar tekið er mið af því allar nema ein eru að spila eitt ár upp fyrir sig. Frábær hópur.

Einnig eru elstu yngri flokkar kkd að keppa í íslandsmóti þar sem stúlkurnar eru með 9.-10. flokk í samstarfi við Þór og hefur veturinn farið vel af stað hjá þeim en báðir flokkar spila í fyrstu deild þar sem tíundi flokkur spilar í sex liða efstu deild og í níunda flokkurn í átta lið efstu deild. Getum sannarlega litið björtum augum til framtíðar þar sem stelpurnar okkar eru á virkilega góðri leið.

Srákarnir í 10.-11. flokki eru einnig í samstarfi við Þór og þar spilar 10. flokkur í fyrstu deild en 11. flokkur í annari deild. Báðar deildir eru átta liða deildir og þvi óhætt að segja að krakkarnir okkar í körfunni séu að spila á mjög góðu leveli getulega séð.

Með körfubolta kveðju yngri flokkar Hamars.