Entries by

Íþrótta- og ævintýranámskeið Hamars og Hveragerðisbæjar

Nú er hægt að skrá börn í íþrótta- og ævintýranámskeið Hamars og Hveragerðisbæjar! Námskeiðshaldari: Íþróttafélagið Hamar og Hveragerðisbær. Aldur: 6 – 12 ára (f. 2008-2000). Tímabil: Haldin verða þrjú námskeið í hálfan mánuð í senn. Námskeið 1: 6.-20. júní, Námskeið 2: 23. júní-4. júlí, Námskeið 3: 7.-18. júlí. Fjölbreytt útivera og hreyfing. Fjallgöngur, ratleikir, sund, […]

Hamar komnir í 32 liða úrslit Borgunarbikarsins.

Hamar sló KFR út í Borgunarbikarnum í kvöld. Hamarsmenn byrjuðu leikinn mun betur og á 22 mínútu skoraði Samúel Arnar Kjartansson fyrir Hamarsmenn flott mark. Skömmu áður hafið Samúel reyndar misnotað sannkallað dauðafæri.  Þetta var hans fjórða mark fyrir Hamar í tveimur leikjum. Samúel Arnar Kjartansson. Það var mun meira jafnræði með liðunum í seinni […]

Mark Lavery genginn til liðs við Hamar.

Í dag fékk Mark Lavery leikheimild með Hamri og kemur hann til með að vera klár í leikinn gegn KH á laugardaginn. Mark er 23 ára miðvörður sem kemur frá Bandaríkjunum og mun hann styrkja lið Hamars mikið. Við bjóðum Mark Lavery því velkominn í frábæran hóp leikmanna. Mark Lavery

Hamar komst áfram í Borgunarbikarnum

Hamarsmenn komust áfram eftir 6-1 sigur á Snæfelli.  Sigurinn hefði getað verið miklu stærri ef ekki hefði verið fyrir frábærar markvörslur frá markmanni Snæfells. Á 30 mínútu skoraði Samúel Arnar Kjartansson fyrsta markið og staðan orðin 1-0. Í uppbótartíma í fyrrihálfleik bætti svo Tómas Ingvi Hassing við öðru marki  og staðan því 2-0 þegar flautað […]

,

Hafsteinn í liði ársins og danskur meistari

Hamarsmaðurinn Hafsteinn Valdimarsson sem spilar nú blak með Marienlyst í Danmörku varð danskur meistari fyrr í mánuðinum þegar liðið sigraði Gentofte 3-2 á heimavelli í fimmta leik úrslitaeinvígisins og hafði þar með betur í rimmunni 3-2. Lið Hafsteins varð einnig danskur bikarmeistari í vetur. Þetta er sjötti titill Hafsteins með liðinu en hann varð einnig lands- […]

Múrþjónusta Helga Þ. hf. skrifar undir samstarfssamning við Knattspyrnudeild Hamars

Múrþjónusta Helga Þ. hf. skrifaði undir samstarfssamning við meistaraflokk Hamars í knattspyrnu. Samningurinn er mikil lyftistöng fyrir félagið en Múrþjónusta Helga Þ. hf hefur verið dyggur stuðningsaðili við Knattspyrnudeildina sem og aðrar deildir innan Hamars í gengum tíðina. Á meðfylgjandi myndum má sjá Davíð Helgason, einn af eigendum Múrþjónustunnar, og Ævar Sigurðsson formann Knattspyrnudeildar Hamars […]

Frost og Funi sigurvegari í Firmakeppni Badmintondeildar Hamars

Firmakeppni badmintondeildar Hamars fór fram í Hamarshöllinni, laugardaginn 29. mars sl. Það voru 37 fyrirtæki sem tóku þátt í keppninni að þessu sinni og var keppnin liður í fjáröflun badmintondeildarinnar. Fjölmennt lið frá Aftureldingu í Mosfellsbæ heimsótti okkur og var með í keppninni, en Aftureldingarmenn voru í æfingabúðum hér í Hveragerði þessa helgi.Sigurvegarar í keppninni […]

Njarðvík 3 Hamar 2 í Lengjubikarnum.

Hamar mætti Njarðvík í Reykjaneshöllini í gær.  Leikurinn byrjaði frekar rólega en Njarðvíkingar voru þó meira með boltann.  Á 15 mínútu urðu Hamarsmenn fyrir áfalli þegar Markús Andri Sigurðsson þurfti að fara meiddur af velli.  Inná kom fyrir hann Hafþór Vilberg Björnsson.   Á 31 mínútu komust Njarðvíkingar í 1-0 með marki frá Patrik Snæ Atlasyni.   Á 40 […]

Hópa og firmakeppni Hamars.

Laugardaginn 22. mars hélt meistaraflokkur Hamars hópa og firmakeppni.  Það er hægt að segja að keppnin heppnaðist mjög vel og tóku tíu lið þátt eða allt að níutíu þáttakendur.  Þarna sáust mörg frábær tilþrif og margar gamlar kempur tóku þátt.  Það sem stóð uppúr er að allir skemmtu sér vel og eingin meiddist.  Einnig eru […]