Íþróttafélagið Hamar sendir iðkendum, foreldrum, þjálfurum, styrktaraðilum og öðrum velunnurum sínar bestu óskir um gleðileg jól og farsældar á komandi ári.
Tag Archive for: Forsíða
Hamarsmenn fá Njarðvík í heimsókn í frystikistuna í kvöld kl 19:15. Hjá Úrvalsdeildar liði Njarðvíkinga er valinn maður í hverju rúmi og má þar nefna Landsliðsmennina Hauk Helga og Loga Gunnarsson t.d. og því er ærið verkefni sem bíður Hamarsliðið. Hamarsmenn eru þó staðráðnir í að gefa ekkert eftir og veita Suðurnesjamönnum harða samkeppni um laust sæti í 8 liða úrslitum powerade bikarsins. Ekki missa af þessum leik. Áfram HAMAR.
Tilkynning frá Íþróttafélaginu Hamri
Vegna slæmrar veðurspár og tilkynninga frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur Íþróttafélagið Hamar tekið ákvörðun um að fella niður æfingar hjá öllum deildum Íþróttafélagsins Hamars í dag, mánudaginn 7. desember.
Íþróttafélagið Hamar hvetur alla til að fylgja eftir tilkynningu Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra þar sem ekki sé ráðlegt að vera á ferðinni eftir klukkan 12 á hádegi í dag á suðurlandi. Á öðrum stöðum á landinu, og þar með talið á höfuðborgarsvæðinu, er ráðlegt að vera ekki á ferðinni eftir klukkan 17.
Nú er desember mánuður genginn í garð og körfuboltinn en í fullu fjöri. Hamarstúlkur taka á móti Val í Frystikistunni í Hveragerði í kvöld. Síðasti heimaleikur hjá stelpunum endaði með glæsilegum sigri á liði Keflavíkur og nú er komið að Valsstelpum. Ekki láta þennan leik framhjá þér fara. Mættu kl 19:05 og leikurinn sjálfur hefst svo kl 19:15. Áfram Hamar
Benedikt Guðmundsson þjálfari 16. Ára landsliðs körfuknattleikssambands íslands hefur valið 24 manna landsliðsúrtak. Þau ánægjulegu tíðindi komu þar að einn af okkar efnilegri strákum var valin til æfinga og auðvitað vonum við að honum gangi sem best þar og komist alla leið í gegnum niðurskurðinn. Sannarlega glæsilegt hjá þessum unga og bráðefnilega strák, ekki nokkur vafi á að hann á eftir að veita okkur Hvergerðingum margar ánægjustundir í Frystikistunni.
Landsliðshópur U16
Alex Rafn Guðlaugsson · KR
Alfonso Söruson Gomez · KR
Arnar Geir Líndal · Fjölnir
Arnar Smári Bjarnason · Skallagrímur
Arnór Sveinsson · Keflavík
Aron Ingi Hinriksson · Snæfell
Benjamín Þorri Benjamínsson · Þór Þorlákshöfn
Björn Ásgeir Ásgeirsson · Hamar
Brynjar Atli Bragason · Njarðvík
Daníel Bjarki Stefánsson · Fjölnir
Danil Kirjanovski · KR
Einar Gísli Gíslason · ÍR
Elvar Snær Guðjónsson · Keflavík
Guðlaugur Hrafn Kristjánsson · Breiðablik
Hafsteinn Guðnason · Breiðablik
Hermann Gestsson · Haukar
Hilmar Pétursson · Haukar
Hilmar Smári Henningsson · Haukar
Ingvar Hrafn Þorsteinsson · ÍR
Leó Steinn Larsen · Breiðablik
Magnús Þór Guðmundsson · Fjölnir
Sigvaldi Eggertsson · ÍR
Smári Sigurz · Fjölnir
Þorsteinn Breki Eiríksson · Breiðablik
Þjálfari: Benedikt Guðmundsson
Aðstoðarþjálfari: Sævaldur Bjarnason
Nú um helgina, 28.-29. Nóvember munu strákarnir og stelpurnar í áttunda flokki spila aðra umferð á íslandsmótinu. Stelpurnar spila í Keflavík í A riðli, fimm bestu lið á landinu, á meðan strákarnir spila í B riðli, sæti 6-10 yfir landið, sem verður spilað í Hveragerði. Bæði lið eru að spila tvo leiki hvorn dag og um að gera að gera sér ferð í íþróttahúsið og hvetja stjörnun framtíðarinnar áfram.
Leikir hjá krökkunum eru:
Laugardagur
Kl 12.00 Hamar – Grindavík Stelpur/ í Keflavík
Kl 13:00 Hamar – Keflavík Strákar/ í Hveragerði
Kl 14:00 Hamar – Keflavík Stelpur/ í Keflavík
Kl 15:00 Hamar – Stjarnan Strákar/ í Hveragerði
Sunnudagur
Kl 10:00 Hamar – Njarðvík b Stelpur/ í Keflavík
Kl 10:00 Hamar – ÍR Strákar/ í Hveragerði
Kl 13:00 Hamar – Njarðvík Stelpur/ í Keflavík
Kl 13:00 Hamar – Breiðablik Strákar/ í Hveragerði
Salbjörg Ragna Sævarsdóttir var valinn leikmaður 8.umferðar Dominosdeildar kvenna af Morgunblaðinu. Morgunblaðið hefur þennan hátt á bæði í kvenna og karladeildinni og fékk Salbjörg (Dalla) þessa viðurkenningu í kjölfar sigurs okkar kvenna 70-69 gegn Keflavík. Í umræddum leik tók Dalla 5 fráköst, setti 15 stig, stal þrem boltum, varði 3 skot og var með samtals 23 framlagsstig. Óskum Döllu til hamingju með þetta og stelpunum öllum til hamingju með sigurinn á Keflavík sem var í meira lagi sætur. Næsti leikur stelpnanna er 29. nóvember í Grindavík.
|
Hamarsmenn fengu flottan liðsstyrk nú undir lok gluggans en Ármann Örn Vilbergsson gekk til liðs við Hamar frá Grindavík. Ármann hefur fengið leikheimild og verður hans fyrsti leikur gegn nöfnum sínum í Ármanni á föstudaginn 20 nóvember kemur. Hamarsmenn unnu sinn síðasta leik gegn KFÍ á heimavelli og eru í 7 sæti deildarinnar með 2 sigra og 2 töp.
Hjónin og tvenndarleiksparið, Hrund Guðmundsdóttir & Þórhallur Einisson, náðu frábærum árangri á Meistaramóti BH sem fram fór helgina 13.-15. nóvember sl. Þau keppa í A-flokki og sópuðu til sín verðlaunum að þessu sinni. Þau unnið gullið í tvenndarleik í hörkuspennandi úrslitaviðureign 21-18 ; 18-21 og 21-18. Þá nældi Þórhallur sér í gullið í tvíliðaleik karla ásamt félaga sínum Agli Sigurðssyni og Hrund hreppti silfrið í tvíliðaleik kvenna ásamt vinkonu sinni Andreu Nilsdóttur. Badmintondeild Hamars óskar þeim innilega til hamingju með árangurinn.











