Skráning fer fram á hamarknattspyrna@gmail.com

Í dag kl. 13:45 verður ritað nýtt blað í sögu knattspyrnufélagsins Hamars í Hveragerði þegar fyrsti leikur sumarsins gegn Uppsveitum verður í beinu streymi á netinu. Hingað til hefur það tíðkast að knattspyrnufélög á Íslandi hafi verið að streyma sínum leikjum. Nú er komið að knattspyrnudeild Hamars.

Hamar ásamt Lagnaþjónustunni og Kjörís, dyggum styrktaraðilum félagsins – kynna knattspyrnuleik frá Grýluvelli í Hveragerði í dag fimmtudag, uppstigningardag. Fyrir þá sem ekki komast hvetjum við alla til að fylgjast með leiknum í lifandi streymi með því að nálgast leikinn í opinni útsendingu án endurgjalds. Hægt að nálgast leikinn hér
🏆 4. deild karla⚽ Hamar – ÍBU🏠 Grýluvöllur📆 Fimmtudagur 13. Maí⌚ KL 14:00
Múrþjónusta Helga Þ, Set, Raftaug og Ölverk styrkja sömuleiðis við gerð útsendingarinnar. 

Meistaraflokkarnir okkar hefja leik í Lengjubikarnum í mars. Fyrsti leikur hjá strákunum er gegn Hvíta Riddaranum föstudaginn 5.mars og stelpurnar hefja leik gegn Fjölni föstudaginn 12.mars. Vonandi geta báðir flokkar byrjað að æfa fljótlega á nýja árinu og gera sig klár fyrir komandi tímabil

Riðillinn hjá strákunum:

https://www.ksi.is/mot/stakt-mot/?motnumer=41987

Riðillinn hjá stelpunum:

https://www.ksi.is/mot/stakt-mot/?motnumer=41985

Knattspyrnudeild Hamars leitar nú að metnaðarfullum þjálfara til að þjálfa meistaraflokk karla félagsins.

Hamar spilar í 4. Deild en hafa verið úr úrslitakeppni s.l ár og verið hársbreidd frá því að komast upp um deild. Í Hveragerði eru aðstæður til knattspyrnuiðkunnar ansi góðar. Á veturnar er æft inni í hlýrri Hamarshöll og á sumrin er æft og keppt á einstöku vallarstæði, Grýluvelli. Nýlega var fjárfest í myndavél sem tekur upp alla leiki liðsins og hægt er að nýta hana fyrir leikgreiningu. Öll umgjörð hjá deildinni er mjög góð og er mikill metnaður í að gera enþá betur og bæta það sem bæta þarf.

Við leitumst eftir þjálfara sem er tilbúin í að halda áfram bæta og efla þá leikmenn sem eru til staðar hjá okkur og halda áfram að byggja upp það starf sem hefur verið undanfarin ár.

Áhugasamir þjálfarar geta sótt um starfið með því að senda email á ollimagnusson@gmail.com.

Allir yngri flokkar félagsins eru komnir á fullt. Gaman að sjá hvað við erum með marga iðkendur hjá okkur. Við getum alltaf tekið við fleiri iðkendum og þau sem að vilja koma og prófa fótboltaæfingu eru velkomin að gera það við frábærar aðstæður.

Endilega mæta á æfingar og prófa eða hafa samband við þjálfara um frekari upplýsingar (sjá upplýsingar um þjálfara flokkana hér að ofan undir þjálfarar)

Jóhann Bjarnason mun ekki þjálfa Meistaraflokk karla hjá Hamri áfram. Fyrir tveimur árum fengum við Jóa til að stýra meistaraflokki karla og má sanni segja að hann hafi unnið frábært starf fyrir félagið. Jói bjó til flott lið úr ungum og efnilegum strákum frá Hveragerði og nærsveitum sem náði góðum árangri s.l tvö tímabil. Bæði tímabilin sem þjálfari skilaði hann liðinu í úrslitakeppni og var liðið hársbreidd frá næsta skrefi bæði árin. Árin tvö sem Jói hefur þjálfað hjá Hamri hefur hann sýnt gríðarlega mikla fórnfýsi og verið sannur félagsmaður. Alltaf boðinn og búinn til að aðstoða við þau verk sem þarf að ganga í, hvort sem það er dómgæsla hjá yngri flokkum, fjáraflanir fyrir félagið eða það sem vantar.

Nú munu leiðir skilja í meistaraflokki karla og vill Knattspyrnudeild Hamars þakka Jóa kærlega fyrir sín störf fyrir félagið og óska honum velfarnaðar í því sem hann tekur sér fyrir hendur. Við vonum innilega að Jói haldi áfram að vera nálægt okkar félagi.

Nú er mikil eftirvænting eftir að úrslitakeppni hefst hjá strákunum í meistaraflokki. Hamar vann sinn riðil með 34 stig og hafa spilað gríðarlega vel í sumar. Hamar vann 11 leiki, gerði eitt jafntefli og töpuðu 2 leikjum. Liðið skoraði 48 mörk og fengu 19 mörk á sig.

Í úrslitakeppninni eru 8 liða úrslit. Spilað er tvo leiki og sigurvegari samanlagt úr þeim viðureignum kemst í undanúrslit. Hamar mun mæta flottu liði KH í 8 liða úrslitum. KH varð í 2. sæti í sínum riðli. Fyrri viðureignin fer fram á Valsvelli n.k Laugardag kl 13:00. Seinni leikurinn fer fram á Grýluvelli á miðvikudag í næstu viku kl 16:15.

Við vonumst eftir því að Hvergerðingar mæti á völlinn, styðji okkar menn og hjálpi þeim að sigra þessa viðureign. Stuðningur ykkar skiptir gríðarlega miklu máli í þessum leikjum!!

Meistaraflokkur kvenna gerði 2-2 jafntefli við Álftanes í kvöld. Staðan í hálfleik var 2-0 fyrir Álftanesi.

Karen Inga Bergsdóttir og Íris Sverrisdóttir skorðu mörk okkar í síðari hálfleik.

Næsti leikur hjá stelpunum er á laugardaginn á móti ÍR á heimavelli kl 14:00