03. september 2010 | 00:00 / Knattspyrnudeild
N.k. laugardag 4. september kl. 12:30 verður fótboltahátíð á Grýluvelli
Við ljúkum formlega yfirstandandi keppnistímabili yngri flokka Hamars með grillveislu sem öllum iðkendum og foreldrum þeirra er boðið í.
Rennt verður yfir hápunkta sumarsins, leikmannasamningar verða undirritaðir við efnilega leikmenn 3. flokks, nýir þjálfarar verða kynntir til sögunnar og nýrri æfingatöflu verður dreift.
Að grillveislunni lokinni verður öllum boðið frítt á hinn mikilvæga leik Hamars gegn KV í 2. deild sem hefst kl. 14:00, en með sigri fer Hamar langt með að tryggja sæti sitt í deildinni. Í hálfleik verður öllum boðið upp á Kjörís.
Sjáumst öll hress og kát í Vallarhúsinu við Grýluvöll kl. 12:30 á laugardag
Bestu kveðjur,
Óli Jó

18. ágúst 2010 | 00:00 / Knattspyrnudeild
Meistaraflokkur Hamars átti ekki velgengni að fagna á tveimur erfiðum útivöllum í seinustu viku. Þriðjudaginn 10 ágúst var haldið á Ísafjörð og leikið við BÍ/Bolungarvík þar lauk leik með sigri heimamanna 3-1.  Síðar í vikunni var farið austur á land og spilað við Hött á Egilstöðum. Skemmst er frá að segja að Hamarsmenn áttu ekki erindi sem erfiði þar og töpuðu 5-0.  Nú er að girða sig í brók og taka hressilega á móti Víði í næsta leik, á blómstrandi dögum í Hveragerði.  Sá leikur getur skipt sköpum um fallsæti deildarinnar en einungis tvö stig skilja Hamar frá liðunum sem þar sitja. 
Og mæta nú og hvetja strákana !

09. ágúst 2010 | 09:40 / Knattspyrnudeild
Hamar tapaði gegn Hvöt á heimavelli á laugardag. Leikurinn var í járnum allan tímann en á 58. mín. náði Jens Sævarsson að sleppa í gegnum vörn Hamars.  Kristinn Steinar sá sitt vænsta að fella Jens og uppskar við það vítaspyrnu og rautt spjald. Hvatarmenn skoruðu úr vítinu og þar við sat í leiknum þrátt fyrir færi á báða bóga eftir það. Hamarmenn eru í 9. sæti deildarinnar, 5 stigum frá fallsæti og þurfa nauðsynlega á stigum að halda til að tryggja veru sína í deildinni.  

09. ágúst 2010 | 09:30 / Knattspyrnudeild

Knattspyrnudeild Hamars hefur tekið ákvörðun um að stofna 2. flokk karla fyrir næsta keppnistímabil! Þetta eru stór tíðindi fyrir Hamar og bæjarfélagið því 2. flokkur hefur ekki áður verið til staðar í Hveragerði. Upp úr 3. flokki eru að ganga margir efnilegir knattspyrnumenn sem nauðsynlegt er að halda vel utanum og við vonum að leikmenn sem leitað hafa í önnur félög undanfarin ár, eða hafa hætt, snúi aftur til baka. Allir leikmenn sem fæddir eru á árunum 1992, 1993 og 1994 eru gjaldgengir, en þar fyrir utan munu leikmenn U-23 liðsins fá að æfa með flokknum, auk einhverra yngri leikmanna. Það er von okkar að með þessu móti fáum við fleiri Hvergerðinga upp í meistaraflokk til að leika með aðalliði félagsins í framtíðinni. Flokkurinn, sem hefur æfingar í september, tekur þátt í Íslandsmót KSÍ og verður rekinn í nánu samstarfi við 2. deildarlið Hamars og fastlega má búast við að efnilegir leikmenn fái tækifæri á að spreyta sig með meistaraflokki.


30. júlí 2010 | 11:55 / Knattspyrnudeild

Eldri flokkar Hamars hafa æft 4 - 5 sinnum í viku og hafa stöðugt verið að bæta sig.
4. flokkur hefur verið mjög vaxandi á Íslandsmótinu í sumar og leikmenn hafa tekið miklum framförum. Flokkurinn fór á fjölmennt alþjóðlegt mót, ReyCup sem haldið var í Laugardalnum dagana 21. – 25. júlí og stóð sig þar með sóma og endaði í 4. sæti. Ekki skemmdi fyrir að leikmönnum fannst mjög gaman á mótinu og hefur sett stefnuna á að fara aftur á næsta ári.
3. flokkur í sameiginlegu liði Hamars og Ægis hefur tekið þátt í Íslandsmótinu og gengið upp og niður, en þó eru greinileg batamerki hjá liðinu. Flokkurinn fór líka ReyCup og stóð sig þar með sóma og endaði í 3. sæti. Nokkrir leikmenn úr 4. flokki hafa fengið að spreyta sig með 3. flokki og hafa þeir staðið sig ágætlega.


30. júlí 2010 | 10:54 / Knattspyrnudeild

5. og 6. flokkur í sameiginlegu liði Hamars og Ægis hefur tekið þátt í B riðli 5. flokks á Íslandsmóti KSÍ í sumar og staðið sig vel. Við erum með fjögur lið og fyrirfram var búist við því að á brattann yrði að sækja, en liðin eru sífellt að ná betur saman eftir því sem strákarnir kynnast betur. Dagana 30/6 – 3/7 tóku drengirnir þátt í skemmtilegu N1 móti á Akureyri , sem er fjölmennasta mót sem haldið er fyrir 5. flokk á landinu. Leikir unnust og töpuðust á víxl en liðin luku mótinu með sigrum og allir skemmtu sér hið besta, sem er að sjálfsögðu aðalmálið.



 

Skrifstofa

Forráðamenn Knattspyrnudeildar

Valgeir Ásgeirsson Formaður
Erla Pálmadóttir Ritari
Rúna Einarsdóttir Meðstjórnandi
Eyjólfur Harðarson Mfl.ráð karla
Halldóra Rut Bjarnadóttir Mfl.ráð kvenna
Steinar Logi Hilmarsson Unglingaráð
   
Ómar I. Guðmundsson Þjálfari yngri fl.
....óskast..! Vefumsjón




Tilkynningar



Á Döfinni

04. september 2010 | 14:00


Íslandsmót 2. deild. Leikurinn fer fram á Grýlu-velli, laugardaginn 4. sept. kl. 14.
11. september 2010 | 14:00


Íslandsmót 2. deild. Leikurinn fer fram á Siglufjarðar-velli, laugardaginn 11. sept. kl. 14.
18. september 2010 | 14:00


Íslandsmót 2. deild. Leikurinn fer fram á Grýlu-velli, laugardaginn 18. sept. kl. 14.



Hver er besti rútubílstjóri Hamars


4.2% Lárus Ingi Friðfinnsson

25.0% Valgeir Ásgeirsson

25.0% Eyjólfur Harðarson

45.8% Steinar Logi Hilmarsson


Íþróttafélagið Hamar, kennitala: 620492-2569