Íþróttafélagið Hamar fékk viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ við hátíðlega athöfn á Hótel Örk þriðjudaginn 18. nóvember 2025.
Veittar voru viðurkenningar til aðalstjórnar og allra sjö deilda félagsins sem eru: Badmintondeild, blakdeild, fimleikadeild, knattspyrnudeild, körfuknattleiksdeild, lyftingadeild og sunddeild. Það var Kári Mímisson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ sem afhenti viðurkenningarnar fyrir hönd ÍSÍ.
Fyrirmyndarfélag ÍSÍ er gæðaverkefni íþrótta-hreyfingarinnar er snýr að íþróttastarfi. Íþróttafélög og deildir innan félaga geta sótt um viðurkenningu til ÍSÍ að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þegar viðurkenning hefur verið veitt gildir hún í fjögur ár.
Viðurkenningunni fylgja ýmsir kostir. Handhafar hennar hafa samþykkt stefnur og viðbragðsáætlanir í flestum þeim málum er snúa að íþróttastarfi. Fjölbreytt markmið með starfinu liggja fyrir og það eitt og sér eykur líkur á því að allir sem koma að starfinu með einum eða öðrum hætti rói í sömu átt, félaginu til heilla og framfara. Siðareglur liggja fyrir, persónuverndarstefna er klár auk stefna í fræðslu- og forvarnarmálum, jafnréttismálum, umhverfismálum og félagsmálum svo eitthvað sé nefnt. Benda má á að sveitarfélög gera í auknum mæli kröfur til íþróttafélaga um að hafa þessa viðurkenningu frá ÍSÍ.
Hér fyrir neðan er hægt að lesa handækur félagsins og allra deilda.
