Sjálfboðaliðar Hamars
Á aðalfundi Hamars 11. mars fengu þau Sara Hammer og Guðmundur Benóný Baldvinsson sérstaka viðurkenningu sem sjálfboðaliðar Hamars fyrir sín dýrmætu störf.
Starf sjálfboðaliða er grunnstoð í starfi Hamars. Án þeirra væri einfaldlega ekki hægt að sinna öllum þeim verkefnum sem félagið sinnir daglega.
Við í Hamri stöndum því í mikilli þakkarskuld við alla okkar sjálfboðaliða. Margir eiga þakklæti skilið og við höfum hafið þá vegferð að þakka fyrir okkur á hverju ári.
Sara Hammer og Guðmundur Benóný eru frábær dæmi um sjálfboðaliða sem félagið getur vart verið án. Þau eru svo sannarlega vel að nafnbótinni komin sem sjálfboðaliðar Hamars. Dugnaður, ósérhlífni og jákvætt viðhorf einkennir þau í öllu sem þau taka sér fyrir hendur innan félagsins. Þau hafa verið virk í starfi Hamars í um það bil 15 ár og á þeim tíma lagt gríðarlega mikið af mörkum. Þau hafa verið sérstaklega virk í knattspyrnunni til fjölda ára, þar sem þau hafa setið í stjórnum og ráðum, unnið að fjáröflunum, aðstoðað við mótahald,ferðalaga og komið að starfi meistaraflokka og ásamt mörgum öðrum verkefnum. Í raun hafa þau lagt hönd á plóg í nánast öllu sem viðkemur starfi knattspyrnunnar. Sara hefur einnig getið sér gott orð fyrir að safna vinningum fyrir fjáröflun félagsins – verkefni sem krefst bæði útsjónarsemi og mikillar þrautseigju.
En framlag þeirra stoppar ekki þar. Þau eru bæði í meistaraflokksráði körfuboltans þar sem þau vinna, ásamt öðrum, að framkvæmd heimaleikja, taka þátt í gæslu á viðburðum og böllum og leggja sitt af mörkum í ýmsum fjáröflunum. Og þegar þarf að taka til hendinni – jafnvel að brjóta niður veggi í Hamarsport – þá eru þau mætt. Guðmundur situr einnig í stjórn Lyftingarfélags Hamars sem er ný deild og á svo sannarlega eftir að láta
meira að sér kveða.
Sara og Gummi hafa verið ómetanlega í Hamarsport, meðal annars við þrif og endalaus verkefni. Þau eru alltaf tilbúin að hjálpa – hvort sem það er að laga bilaða ryksugu, skjótast á Selfoss,þurrka upp vatnsleka, breyta, taka til í geymslum fara á haugana, sækja búnað eða einfaldlega grípa í það sem þarf að gera hverju sinni.
Jákvæðni, dugnaður og vilji til að taka þátt og leggja sitt af mörkum – þetta eru eiginleikar sem lýsa Söru og Gumma einstaklega vel.
Þau eru félaginu okkar afar mikilvæg.
Takk kærlega fyrir allt sem þið hafið gert fyrir Hamar.


