Aðalfundur Hamars 2026

Aðalfundur Hamars var haldinn miðvikudaginn 11. mars sl. á Hótel Örk.
Það var ánægjulegt að sjá hversu margir félagsmenn mættu til leiks, en góð mæting sýnir þann mikla kraft og áhuga sem býr í félaginu okkar.

Þorsteinn T. Ragnarsson, formaður Hamars, setti fundinn og var Guðríður Aadnegard kjörin fundarstjóri. Á fundinum fóru fram hefðbundin aðalfundarstörf þar sem Jónas Guðnason, gjaldkeri, fór m.a. yfir fjármál félagsins.

Íþróttafólk Hamars

Einn hápunktur fundarins var verðlaunaafhending þar sem framúrskarandi íþróttafólk var heiðrað fyrir árangur sinn á liðnu ári.

Íþróttamaður Hamars 2025: Rodrigo Leonel Depetris
Knattspyrnumaður Hamars: Rodrigo Leonel Depetris
Blakmaður Hamars: Aron Bjarnason
Körfuboltamaður Hamars: Arnar Dagur Daðason
Lyftingarkona Hamars: Anna Guðrún Halldórsdóttir
Badmintonkona Hamars: Rebekka Einarsdóttir

Heiðursmerki og sjálfboðaliðar
Mikilvægi sjálfboðaliðastarfsins var einnig í brennidepli. Pétur Frantzon var sæmdur Gullmerki Hamars fyrir ómetanlegt framlag sitt til félagsins í gegnum tíðina. Þá fengu þau Sara Hammer og Guðmundur Benóný Baldvinsson sérstaka viðurkenningu sem sjálfboðaliðar Hamars fyrir sín dýrmætu störf.

Stjórn Hamars 2026
Ný stjórn var kjörin á fundinum og mun hún leiða starf félagsins á komandi ári
Formaður: Þorsteinn T. Ragnarsson
Ritari: Dagrún Ösp Össurardóttir
Gjaldkeri: Jónas Guðnason
Meðstjórnandi: Eva Harðardóttir
Meðstjórnandi: Ágúst Logi Valgeirsson

Við þökkum öllum þeim sem mættu fyrir góðan fund og óskum verðlaunahöfum og nýrri stjórn innilega til hamingju!