Vilt þú styðja við félagið?

Félagsmaður Hamars

Viltu styðja við félagið og gerast félagsmaður Hamars?

Hamar er íþróttafélag með átta deildum sem heldur úti skipulögðu íþróttastarfi fyrir alla aldurshópa, frá leikskólabörnum yfir í eldri borgara. Lögð er áhersla á almenna hreyfingu, gott íþróttastarf og öflugt afreksstarf.

Félagsmenn Hamars skipta okkur miklu máli. Félagsmenn eru ný stoð félagsins við yngri iðkendur. Það lengir og bætir lífið að vera virkur félagsmaður í besta íþróttafélaginu.

Framlög félagsmanna renna í grunnverkefni. Af mörgum má nefna kaup Hamarsbúninga fyrir alla iðkendur í 1.bekk, þátttakendur í fjölgreinaverkefni Hamars.

Félagsgjald er 5.000 kr á ári. Allir skráðir félagsmenn fá árlega senda kröfu í heimabanka.

Ef þú hefur áhuga á að gerast félagsmaður í Hamri þá geturðu gert það á tvenna vegu

1. Skráð þig inn á abler

2. Lagt inn á reikn 0314-26-10 kt 620492-2569 og sent kvittun á hamarsport@hamarsport.is

Styrktaraðilar Hamars


Hamar er almannaheillafélag

Við erum almannaheillafélag og það þýðir að styrkir til Hamars eru frádráttabærir hjá skattinum

Með lögum sem samþykkt voru þann 1. nóvember 2021 geta einstaklingar og fyrirtæki fengið endurgreiðslu frá skatti ef þau styrkja íþróttafélög sem eru skráð á almannaheillaskrá.

Einstaklingar geta fengið skattfrádrátt (lækkun á tekjuskattstofni) með því að styrkja Hamar um allt að 350.000 kr. en að lágmarki 10.000 kr.
Dæmi: Einstaklingur sem greiðir 30.000 kr. styrk til Hamars fær skattafslátt að fjárhæð 9.435 kr. og greiðir þannig í raun 20.575 kr. fyrir 30.000 kr. styrk til félagsins.

Fyrirtæki geta líka fengið skattafslátt vegna styrkja. Fyrirtækjum er heimilt að draga frá skattstofni allt að 1,5% af rekstrartekjum.
Dæmi: Fyrirtæki sem styrkir Hamar um 500.000 kr. getur lækkað tekjuskattinn sinn um 100.000 kr. fyrirtækið greiðir þannig í raun 400.000 kr. fyrir 500.000 kr. styrk til Hamars.

Svona gengur ferlið fyrir sig:
• Þú millifærir upphæð að eigin vali að lágmarki 10.000 kr. og sendir kvittun á hamarsport@hamarsport.is
• Hamar sendir kvittun til baka á greiðanda þar sem fram kemur nafn og kennitala greiðanda ásamt upphæð styrks.
• Hamar sendir upplýsingar um styrki til skattsins, sem kemur skattafslættinum til skila til þín.

Til þess að geta nýtt heimildina þarf greiðsla að hafa borist fyrir 30. desember ár hvert.

Reikningsupplýsingar:
0314-26-10
kt 620492-2569
Kvittun sendist á hamarsport@hamarsport.is

Við hjá íþróttafélaginu Hamri sendum kærlegar þakkir til allra þeirra sem hafa veitt okkur ómetanlegan stuðning í gegnum tíðina.

Einnig er hægt að styrkja ákveðnar deildir sérstaklega. Áhugasamir geta haft samband við okkur á netfangið hamarsport@hamarsport.is eða beint á netföng viðkomandi deilda.