Íþróttamaður Hamars 

Á aðalfundi Hamars 11. mars sl. var íþróttamaður Hamar valinn og framúrskarandi íþróttafólk var heiðrað fyrir árangur sinn á liðnu ári.

Knattspyrnumaðurinn Rodrigo Leonel Depetris var valinn íþróttamaður hamars en aðrir sem voru tilnefndir voru blakmaðurinn Aron Bjarnason, körfuboltamaðurinn Arnar Dagur Daðason, lyftingarkonan Anna Guðrún Halldórsdóttir og badmintonkonan Rebekka Einarsdóttir en öll höfðu þau náð glæstum árangri á árinu.

Badmintonkona ársins
Rebekka Einarsdóttir
Rebekka keppti á öllum unglinga- og fullorðinsmótum í vetur með góðum árangri í öllum greinum. Rebekka var valin til að taka þátt í stelpuafreksæfingu BSÍ með landsliðsþjálfara í mars og svo í U17-U19 Nord Atlantic Camp æfingabúðum með liðum frá Færeyjum og Grænlandi sem fóru fram í Júní. Rebekka er einnig HSK meistari í einliðaleik 2025. Hún starfar sem aðstoðarþjálfari í fjölgreinum.

Knattspyrnumaður Hamars
Rodrigo Depetris
Rodrigo, eða Roli eins og við þekkjum hann, var máttarstólpi í liði Hamars á nýloknu tímabili þar sem liðið stóð frammi fyrir miklum áskorunum allt þar til á lokasprettinum og með dugnaði, trú og baráttuanda tókst liðinu á ótrúlegan hátt að bjarga sér frá falli með Roli í fararbroddi, afrek sem margir töldu ómögulegt eftir gengi sumarsins.
Roli var  kosinn leikmaður ársins af liðsfélögum og stjórn knattspyrnudeildar að tímabilinu loknu. Á sama tíma hefur hann verið ómissandi í starfi bæði yngriflokka knattspyrnudeildar og íþróttafélagsins í heild þar sem hann hefur þjálfað undanfarin ár. Þeir sem hafa kynnst Roli geta vottað um að hann er einstaklega hjálpsamur og leggur mikla ástríðu í það sem hann tekur sér fyrir hendi, hvort sem það er að miðla reynslu og ráða í knattspyrnu til liðsfélaga eða yngri iðkenanda sem hann þjálfar eða að hamast í snjómokstri á þungum vetrarmorgnum svo að æfingar dagsins geti farið fram á óupphituðum gervigrasivelli á grunni Hamarshallarinnar.
Fyrir þetta framlag, fyrir eldmóðinn, árangurinn og fyrir allt það sem hann gerir fyrir íþróttafélagið okkar, er það okkur mikill heiður að útnefna Rodrigo Depetris Íþróttamann Hamars.

Körfuboltamaður Hamars
Arnar Dagur Daðason
Við erum afar stolt að tilkynna að Arnar Dagur Daðason hafi verið kosinn Körfuboltamaður Hamars. Arnar, sem er 24 ára, hefur æft með Hamar alla yngri flokka og borið félagið með sér hvert sem hann fer. Hann hefur ávallt sýnt óbilandi tryggð og metnað – með risastórt Hamars-hjarta sem slær jafnt innan sem utan vallar. Á undanförnum árum hefur Arnar risið upp sem sterkur leiðtogi. Hann lætur til sín taka í klefanum, styður liðsfélaga sína og sýnir með framgöngu sinni hvað það þýðir að vera sannur Hamarsmaður. Leiðtogahæfileikar hans birtast ekki aðeins í leikjum heldur einnig í daglegu starfi og samskiptum. Samhliða eigin keppni hefur Arnar einnig tekið að sér þjálfun yngri flokka hjá félaginu. Þar er hann mikil fyrirmynd fyrir yngri kynslóðina – bæði sem leikmaður og manneskja. Hann miðlar reynslu sinni áfram, hvetur og styður unga iðkendur og leggur sitt af mörkum til að byggja upp sterka framtíð fyrir félagið. Við óskum Arnari hjartanlega til hamingju með viðurkenninguna og þökkum honum fyrir ómetanlegt framlag til félagsins. Framtíðin er björt með svona Hamarsmönnum í okkar röðum.

Blakmaður Hamars
Aron Bjarnason
Aron hefur verið í Hamri síðastliðin ár og hefur lengi verið einn af máttarstólpum blakdeildarinnar. Aron hóf árið 2025 í annari deildinni með Hamri og var hann þar einn af lykilmönnum liðsins sem endaði um miðja deild. Hann ákvað síðan að taka stökkið yfir og leika með liði Hamars í efstu deild og hefur Aron verið stór partur af liðinu í vetur og er hann ávallt tilbúinn að koma inn og spila hvaða stöðu sem þjálfarinn setur
hann í. Aron er fyrirmynd fyrir yngri sem eldri iðkenndur liðsins og hefur hann sýnt það í vetur að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi.
Aron er vel að þessum titli kominn og óskar blakdeildin Aroni innilega til hamingju með valið.

Lyftingarkona Hamars
Anna Guðrún Halldórsdóttir
Anna Guðrún hélt áfram frábærum árangri í ýmsum mótum í ólympískum lyftingum þar sem hún varð bæði Íslands- og Evrópumeistari í sínum flokki ásamt því að setja Íslandsmet og Evrópumet.

Íslandsmeistarmót:
Haldið 8. jan 2025 í Hafnarfirði
Anna Guðrún keppti í flokki 87+kg
Endaði með 57kg í snörun og 78kg í jafnhöttun sem voru bæði Íslandsmet í þeim flokki

Evrópumót:
Haldið 2 – 10 maí 2025 á Grand Blue Fafa Hotel Resort, Golem/Dürres  í Albanía
Anna Guðrún keppti í flokki mínus 87kg
Endaði með 62kg í snörun og 80kg í jafnhöttun, sem voru Evrópumet
Árangur: Evrópumeistari í sínum flokki

Heimsmeistaramót:
Haldið 4 – 13 september á Westgate Resort and Casion í Las Vegas, USA.
Anna Guðrún keppti í flokki mínus 86kg (hér var búið að breyta
þyngdarflokkum)
Endaði með 61kg í snörun og 79kg í jafnhöttun
Árangur: 2. sæti

Miðjarhafsmót:
Haldið 23 – 26 október í Mutxamel höllinni í Alicante, Spáni
Anna Guðrún keppti í flokki 86kg+.
Endaði með 57kg í snörun og 81 í jafnhöttun
Árangur: 1. sæti og 3. sæti í liðakeppni
Í dag á Anna Guðrún 24 Íslandsmet og 6 Evrópumet