Sunddeild Hamars æfir í sundlauginni Laugaskarði.

Eldri krakkarnir hafa einnig frjálst val um að mæta á laugardagsæfingar á Selfossi kl. 9:30.

Áhersluþættir Sunddeildar Hamars:

Sund er skemmtileg alhliða þjálfun sem byggir á góðri tækni, mýkt, liðleika, styrk og úthaldi.
Öll þjálfun í deildinni er einstaklingsmiðuð.

Áhersluþættir í þjálfun yngri hóps eru:

  • Agi
  • Virðing
  • Samvinna
  • Samhæfing
  • Líkamsburður
  • Sundtækni allra sundaðferða
  • Þol
  • Leikir og gleði

Áhersluþættir í þjálfun eldri/keppnis hóps eru allt ofantalið en auk þess:

  • Sérhæfð tækni
  • Keppnisþjálfun
  • Sprettþol
  • Loftháð þol