
Hamar gerði sér lítið fyrir og sigraði Aldursflokkamót HSK fimmta árið í röð nú um helgina.
Á fimmtudagskvöld þann 12. mars þreyttu 22 sundmenn Guðlaugssund í Laugaskarði í Hveragerði. Synt var til að minnast frækilegs afreks Guðlaugs Friðþórssonar er komst lífs af er báturinn Hellisey sökk um 6 kílómetra suðaustur af Heimaey.
Það voru 16 sundmenn frá Hamri sem syntu á Sparisjóðsmóti ÍRB sem var sannkallað stórmót með yfir 400 kependum. Okkar sundfólk stóð sig mjög vel, sýndu góðar framfarir, syntu margar greinar sem þau höfðu ekki synt áður og gekk það allt prýðilega. Þetta var flott ferð hjá krökkunum.
Síðastliðinn laugardag sóttum við heim sunddeild Dímonar á Hvolsvelli.
Þar var vel tekið á móti okkur og haldin sameiginleg sundæfing undir styrkri stjórn Paulo Sicoli þjálfara.
Á eftir fengu síðan allir ljúffenga hressingu í boði Dímonar.
Við þökkum Dímoni kærlega fyrir góðar móttökur og vonumst til að framhald verði á sameiginlegum uppákomum í framtíðinni.






































































