01. júlí 2010 | 12:51 / Sunddeild

Sunddeildin lauk starfsári sínu með sumarferð í gær og var farið með Hamarsrútunni til Álftanes þar fína sundlaugin þar var tekin út. Rennibrautin prófuð ásamt öldulauginni. Á eftir borðuðum við kvöldmat á American Style í Hafnarfirði og komum heim södd og sæl kl. 21.

Stjórn sunddeildar Hamars vill þakka sundmönnum og forráðamönnum þeirra kærlega fyrir skemmtilegan vetur og vonumst við til að sjá ykkur öll aftur er æfingar hefjast að nýju í upphafi næsta skólaárs.

Hafið það gott í sumar.


24. júní 2010 | 16:30 / Sunddeild
Sundnámskeið Sunddeildar Hamars hefst mánudaginn 28. júní og stendur til 13. júlí. Kennt verður fyrir hádegi. Krakkar fædd 2006 og eldri eru velkominn á námskeiðið. Námskeiðin verða alls 12 skipti. Námskeiðsgjald 8000 kr. Greiðist í 1. tíma. Leitast verður við að raða krökkunum niður eftir getu og aldri. Krakkar á skólaaldri velkomin, það er pláss fyrir alla. Upplagt til að skerpa sundtæknina. Kennslu annast Magnús Tryggvason Íþróttafræðingur. Skráning hjá Magnúsi 898-3067 Með sundkveðju Sunddeild Hamars

15. júní 2010 | 15:23 / Sunddeild

Í gær fór fram Héraðsmót HSK í sundi í Laugaskarði í því mesta vatnsveðri sem sést hefur á þessu ári. Þrátt fyrir það tókst mótið með ágætum og fóru leikar þannig að Hamar sigraði stigakeppni félaganna með 125 stigum. Selfoss fékk 60 stig og Dímon 28.

Besta afrek mótsins samkvæmt alþjóðlegri stigatöflu átti Hrólfur Laugdag Árnason, Selfossi og varð hann einnig stigahæsti karl mótsins. Stigahæsta konan varð Ólöf Eir Hoffritz, Selfossi.


07. júní 2010 | 09:39 / Sunddeild
Sundnámskeið sunddeildar Hamars hefjast í næstu nánar tiltekið mánudaginn 14. júní. Sundnámskeið Sunddeildar Hamars hefst mánudaginn 14. júní og stendur til 30. júní, kennt verður eftir hádegi. (28. júní – 14. júlí verður kennt fyrir hádegi ef næg þáttaka fæst) Krakkar fædd 2006 og eldri eru velkominn á námskeiðið. Námskeiðin verða alls 12 skipti. Námskeiðsgjald 8000 kr. Greiðist í 1. tíma. Leitast verður við að raða krökkunum niður eftir getu og aldri. Krakkar á skólaaldri velkomin, það er pláss fyrir alla. Upplagt til að skerpa sundtæknina. Kennslu annast Magnús Tryggvason Íþróttafræðingur. Skráning hjá Magnúsi 898-3067 Með sundkveðju Sunddeild Hamars

10. maí 2010 | 09:25 / Sunddeild

Laugardaginn 1. maí fór Aldursflokkamót HSK fram í Þorlákshöfn í blíðskaparveðri.


29. apríl 2010 | 10:02 / Sunddeild
Aldursflokkamót HSK fer fram í sundlauginni í Þorlákshöfn næstkomandi laugardag og hefst upphitun kl. 09.30. Mót hefst klukkan 10.


Skrifstofa

Forráðamenn deildarinnar:

 
Guðrún Hafsteinsdóttir form. 660-1610
Björg Halldórsdóttir gjaldk. 848-8148
Steinunn Gísladóttir ritari 691-4854
 
Magnús Tryggvason þjálfari 898-3067
 
Sundlaugin Laugaskarði 483-4113




Tilkynningar

07. júní 2010 | 09:43





Á Döfinni




Hvað finnst þér vanta í laugina okkar?


60.0% Innisundlaug

10.0% Rennibraut

0.0% Foss

0.0% Fleiri potta

0.0% Þurra gufu

30.0% Betri búningsklefa


Íþróttafélagið Hamar, kennitala: 620492-2569