Dagur 8 fimmtudagur 28 maí 2009

Eftir að leiknum var lokið í gærkvöldi í fótboltanum voru einhverjir sem ákváðu að horfa líka á körfuboltaleik i beinni um nóttina Lakers- Denver. Daði tók að sér að vakna og taka vaktina með þeim áhugasömu. Þrátt fyrir erilsaman dag daginn áður og lengri fótaferðatíma var helmingur af liðinu vaknaður fyrir 8 og vildi fá morgunmat. Þar sem við vorum ekki með pantaðan morgunmat á hótelinu og það var búið að ákveða að borða um klukkan 10 var ekki hægt að breyta því á hótelinu. Um kl. 10:00 var tékkað út af Danhostel og farið með farangur í geymslu á aðaljárnbrautarstöðinni samkvæmt áætlun. Hluti hópsins var nú orðinn verulega þjáður af hungri og sáu morgunhressingu í hillingum. Fórum saman niður á Ráðhústorg og þar var öllum leyft að kaupa sér hressingu þar sem þeim leist best á.

Eftir morgunhressingu á Ráðhústorginu var gengið með hópinn í Tívoli þar sem allir vildu eyða síðasta degi ferðarinnar í Danaveldi. Þegar inn var komið tvístraðist hópurinn í smærri hópa og krakkarnir hurfu í hin ýmsu tæki, framundan var 6 tíma heimsókn í Tivoli. Fararstjóri og þjálfari tóku því rólega með rölti og skoðunarferð um svæðið. Virkilega flottur staður og gaman að koma til. Um klukkan 18 var mæting við aðalinngang , náð i farangur og haldið út á Kastrup.

Lent í  Keflavík rétt fyrir 11 um kvöldið, allir orðnir þreyttir og þráðu það eitt að komast heim í rúmið sitt. Frábær ferð á enda.

Fararstjóri og þjálfari vona að allir hafi skemmt sér vel. Í það minnsta  erum við sammála um að  ferðin sé búin að vera okkur ánægjuleg. Allir eru búnir að standa sig frábærlega. Krakkarnir búnir að vera sjálfum sér , okkur og Íþróttafélaginu Hamri til sóma.

Krakkar! Við þökkum ykkur fyrir frábæra samveru.

Davíð Jóhann og Daði

 

 

Dagur 7 miðvikudagur 27 maí  – Kaupmannahöfn

Farið á fætur um 6:30 og eftir kjarngóðan morgunverð tókum við Daði lestina og  fórum í Kildeskovshallen þar sem að gestaforeldrar skiluðu af sér krökkunum eftir næturgistingu.  Þetta var allt miklu auðveldara fyrir alla. Gestaforeldrar búnir að átta sig á því að börnin okkar eru ekki ólík þeirra eigin og krakkarnir okkar búnir að átta sig á að danskir foreldrar eru ekki ólíkir íslenskum foreldrum.

Nú þurfti semsagt að koma farangri fyrir þar til við gætum innritað okkur öll inn í Danhostel þar sem allir gista síðustu nóttina. Vorum svo heppin að geta fengið strax eitt herbergi á Danhostel undir farangur svo  við þurftum ekki að leigja pláss undir farangurinn á lestarstöðinni. Þegar öllu þessu var lokið var hægt að ákveða hvað krakkarnir gætu gert yfir daginn, (það vildu ekki allir gera það sama) Ákveðið að ganga út á Ráðhústorgið og leyfa krökkunum að skipta sér þar. Þeir sem hafa komið til Kaupmannhafnar vita að þar byrjar/endar „Strikið“. Þau krakkanna sem langaði að fara í búðir voru orðin óþreyjufull að komast af stað. Þegar búið var að leggja lífsreglurnar fyrir daginn og allir búnir að átta sig á að mæta klukkan 16:00 aftur á Ráðhústorgið máttu krakkarnir fara af stað. Þeir óþreyjufyllstu sem vildu versla gátu ekki gengið af stað , þau hlupu af stað niður á „Strikið“! Framundan var semsagt rúmlega 5 klukkutíma frjáls tími.

Daði tók að sér að hafa auga með lífinu á Strikinu og næstu klukkutímar hjá honum fóru í að spássera  fram og tilbaka og „rekast“ á okkar fólk. Fararstjórinn fór eins og nafnið ber með sér, með restina sem vildi gera eitthvað annað í smá skoðunarferð um Kaupmannahöfn.

Við byrjuðum á að ganga niður  „Strikið“ og niður í Nyhavn og síðan áfram til Amalíuborgar þar sem konungsfjölskyldan býr yfir vetrartímann. Þar náðum við að sjá vaktaskipti hjá varðliðum drottningar klukkan 12:00. Sambland af tindátum og músik og skemmtilegt á að horfa. Þetta er hinsvegar hin rammasta alvara því tindátarnir eru vel vopnum búnir og alvöru hermenn.

Frá Amalíuborg gengum við tilbaka í Nyhavn og fórum í siglingu um höfnina og inn í nærliggjandi skipaskurði. Báturinn komst hinsvegar ekki undir allar brýr sem á vegi okkar urðu þar sem það var háflóð en það skemmdi ekki fyrir neinum og gaf þessu öllu bara meiri ævintýraljóma.

Eftir svalandi siglingu var hrollur í hópnum og því var ákveðið að kíkja við á D’Anglaterre og athuga hvort við gætum ekki fengið okkur heitt súkkulaði. Þegar þangað var komið sáum við einungis A la Carte matseðla og ákváðum því að halda áfram upp Strikið. Þar var kíkt í nokkrar búðir á leiðinni upp á Ráðhústorg. Á leiðinni rákumst við að sjálfsögðu á aðra hópmeðlimi. Þetta endaði síðan með því að allir mættust á Ráðhústorginu eins og um var samið klukkan 16:00

Næst var að ná í íþróttatöskur og koma sér í lestina til að spila vináttuleik við SISU. Á leiðinni þangað í lestinni vorum við svo heppin að rekast á einn úr liðinu og hann lóðsaði okkur í íþróttahöllina þar sem leikurinn  átti að fara fram.

Nú var semsagt alvaran framundan hjá okkar krökkum en því miður gátu ekki allir spilað með vegna hnjasks sem þau höfðu orðið fyrir, einn með snúinn ökla og annar veill í hné. Við höfðum hinsvegar nóg af leikmönnum þannig að það kom ekki að sök , bara leiðinlegt að geta ekki tekið þátt í leiknum eftir allt puðið síðustu daga.

Leikurinn var gríðarlega spennandi og greinilegt að æfingar síðustu daga hafa breytt liðinu heilmikið. Allir voru með á hreinu hvað hver átti að gera, fyrir utan fararstjórann(hann hefur ekkert vit á körfubolta!) Skemmtilegast var að sjá þegar stelpurnar okkar voru settar inná. Það olli miklum ruglingi til að byrja með hjá SISU mönnum, þeim fannst skrýtið að spila á móti svona blönduðu liði. Foreldrar SISU liðsins höfðu hinsvegar á orði að þetta væri frábær blanda þar sem stelpurnar gáfu strákunum nákvæmlega ekkert eftir.

Leikhluti I            Hamar 12 - SISU 7

Leikhluti II           Hamar 26 –SISU 30

Leikhluti III         Hamar 41 – SISU 41

Leikhluti IV         Hamar 63 – SISU 53

Eftir venjlegan leiktíma var ákveðið að bæta við tveimur leikhlutum þar sem bæði lið voru fjölmenn og margir höfðu spilað mismikið. Eftir tvo viðbótar leikhluta var Hamar enn yfir og endaði þessi gríðarlega skemmtilegi leikur á því að Hamar var með 74 stig á móti 73 stigum SISU. Frábær leikur, gríðarleg spenna og gaman að sjá að æfingabúðirnar höfðu greinilega haft sitt að segja.

Eftir leik var ekki til setunnar boðið. Margir vildu ná að sjá úrslitaleikinn í Evrópukeppninni Barcelona- Manchester United. Þeir sem það vildu fóru nestaðir með Mac‘D eða álíka niður á hótel en þeir sem vildu fá almennilega að borða eins og einhver sagði  fóru á Jensen‘s bøfhus. Allir komnir á hótelið rúmlega 22:00 og stemmingin í hópnum góð.

Á morgun á að byrja á því að sofa aðeins lengur en síðustu daga!

  

Dagur 6 þriðjudagur 26 maí 2009

Ræs rúmlega sex. Snöggur morgunverður og síðan fórum við Daði af stað til að vera tilbúnir þegar krakkarnir kæmu til baka eftir gistingu hjá félögunum í  SISU. Við vorum spenntir að heyra hvernig hefði gengið. Allir virtust ánægðir og heilir heilsu eftir nóttina. Enda eru gestgjafar okkar allir venjulegt fólk eins og við sem betur fer. Ánægjulegt að taka á móti krökkunum brosandi og kátum.

Þegar hópurinn var allur saman kominn var byrjað á að syngja afmælissöngin fyrir Hafstein. Hann á 15 ára afmæli  í dag. Gengum síðan niður á lestarstöðina í „Bernstorffsvej“. Þaðan var förinni heitið niður á Aðalbrautarstöðina i Kaupmannahöfn. Krakkarnir eru orðin sjóuð í að halda hópinn þannig að þetta er ekkert mál. Ákveðið að ganga niður „STRIKIГ til að fá smá tilfinningu fyrir Kaupmannahöfn. Þaðan var gengið niður í „NYHAVN“. Ákváðum að í staðinn fyrir morgunæfingu skyldi tekinn góður göngutúr(krakkarnir voru ekki spurð). Ferðinni var semsagt heitið niður á Amager strönd þar sem veðurspáin leit ansi vel út fyrri part dags. Eftir dágóðan spotta (fáið örugglega nánari lýsingu seinna) var tekinn strætó niður á strönd. Þegar þangað var komið var orðið frekar þungbúið og búnir að falla nokkrir dropar þannig að mesti glansinn var farinn af því að fara niður á strönd. Nokkrir bleyttu samt tærnar í sjónum og síðan var ákveðið að eyða frekar tímanum í skjóli. Tókum lest niður á „Dybbölsbro“ þar sem verslunarkjarninn „Fisketorvet“ er staðsettur. Ákváðum að gefa öllum lausan tauminn í 2 tíma , þannig að krakkarnir skiptu sér niður í hópa til að fá sér hressingu og versla. Mjög þægilegt að hafa alla á sama stað. Um klukkan 3 var kominn tími til að fara aftur upp í Kildeskovshallen á æfingu hjá Lárusi og félögum í SISU. Mættum tímanlega eftir að hafa lent í miðaeftirliti í lestinni. Vingjarnlegur náungi gekk á alla í hópnum og athugaði hvort allir væru með gildan miða í lestina. Hann gaf okkur grænt ljós og vildi síðan endilega leiðbeina okkur áfram í næstu lest. Þegar við renndum inn á rétta stoppistöð sagði hann okkur að hér væri best að fara út úr lestinni. Hafsteinn tók hann á orðinu og kallaði hátt og skýrt yfir hópinn að fara -ÚT! Hálf lestin stóð upp! Lestarvörðurinn sagði við mig að hann ætlaðist ekki til að tæma lestina. Hann ætti bara við okkur! Hafsteinn vill að fyrirmæli séu skýr og stundum eru þau mjög skýr!

Mættum í Kildeskovshallen á æfingu klukkan 4. Þar tóku á móti okkur gestgjafar okkar. Lárus stjórnaði æfingu og bætti inn í smá leik á milli liðanna. Kappið var mikið og ekkert gefið eftir af hvorugu liðinu. Þetta endaði með því að fararstjórinn bað Lárus um að draga aðeins úr spennunni, krakkarnir ættu jú eftir að gista eina nótt hjá gestgjöfunum! Þetta fór allt vel og í lok æfingar var spennan farin úr báðum liðum. Krakkarnir fóru með gestgjöfum og farastjóri og þjálfari fóru á sitt hótel.

Á morgum kemur nýr dagur með nýjum ævintýrum...

Dagur 5 mánudagur 25 maí 2009- Kaupmannahöfn

Milt og fínt veður. Undir niðri kraumar spenna fyrir lestarferð til Kaupmannahafnar. Dagurinn byrjaði auðvitað á morgunverði og í framhaldi var morgunæfing. Æfing kláruð um 11:00 og haldið upp í íþróttamiðstöð, allir í sturtu og síðan í mat.

Eftir matinn þurftu allir að taka saman í herbergjunum og pakka í töskur. Það  gekk eins og í sögu og lyklum skilað í móttöku. Þurftum reyndar að skipta hópnum í tvennt til að halda ró því hluti hópsins lét standa á sér. Málið var nefnilega að það ÞURFTI að komast í sjoppu áður en við myndum taka lestina til Kaupmannahafnar. Þetta tókst allt á endanum og allir sátu sáttir og sælir, vel birgðir fyrir ferðina til Köbenhavn. Við vorum heppin svo heppin að við þurftum ekki að skipta um lest á leiðinni þannig að eftir að í lestina var komið gátu allir andað léttar.

Lárus Jónsson okkar frábæri félagi úr Hamri tók á móti okkur á aðaljárnbrautarstöðinni og leiddi okkur að Kildeskovshallen þar sem hann spilar og þjálfar yngri flokka. Mættum beint í pizzuveislu í boði SISU félaga. Okkar fólk fékk smá sjokk þar sem að þeim fannst SISU liðið ansi stórt þ.e.a.s. meðalhæð drengjanna er ca. 180 cm + en við sjáum hvað setur. Allir í liðinu tóku vel á móti okkur og voru greinilega spenntir yfir heimsókn okkar. Hittum foreldrana sem taka krakkana okkar í gistingu. Okkur Daða leist bara vel á fólkið.

 Kæru foreldra engar áhyggjur! Ég held að börnin séu vel sett í höndum félaga þeirra úr SISU og fá tækifæri til að kynnast þeim enn betur. Allir geta í það minnsta gert sig skiljanlega á ensku og svo auðvitað á hinu ylhýra máli dönsku. Frábær upplifun!

Farastjóri og þjálfari fóru í fylgd Lárusar á hótelið (það ódýrasta sem fannst), ljómandi gott en ég verð að játa að hugur okkar er hjá krökkunum. Það er smá skrýtið að skilja þau svona eftir þrátt fyrir allt , en við komumst alltaf að sömu niðurstöðu þetta getur bara gert krökkunum okkar gott!

Erum búnir að stilla vekjaraklukkurnar 06:30 til að vera örugglega mættir í Kildeskovshallen á undan krökkunum kl 08:00

Morgundagurinn fer í að kynnast Kaupmannahöfn að hætti Davíðs og Daða .... framhald á morgun.

http://sisu.dk/

 

Mánudagur, 25. maí 2009 - Síðasta færsla frá Vildbjerg

Eftir rúman klukkutíma leggjum við af stað til Kaupmannahafnar. Þar mun Lárus Jónsson fyrrv. fyrirliði meistaraflokks Hamars taka á móti okkur. Það er mikil eftirvænting innan hópsins og öllum hlakkar mikið til að koma til höfuðborgarinnar.

Veðrið í Kaupmannahöfn næstu daga

 Vejret i Storkøbenhavn

 

Dagur 4 í Vildbjerg

Dagur rann upp ljós og fagur. Allir í góðu formi, Ingimar er búinn að vera með óþægindi í öðrum fætinum þannig að hann þarf að hafa hægt um sig í dag.

Eftir morgunmat var tekinn stofugangur ef svo mætti segja. Herbergin koma misvel undan gærkvöldinu en umgengnin er öll að batna  en ekki svo að skilja að það hafi verið slæm umgengni. Einhverjir eru að vona að þau komist til eðlilegra fjölskyldna í Kaupmannahöfn þar sem þau þurfa ekki að hugsa um að taka til og „enginn“ draslar til. Í venjulegum fjölskyldum er líka „enginn“ sem tekur til það bara er svoleiðis.

Æfingin var tekin með trompi eins og alltaf og eftir hádegismat var ákveðið að hafa það bara rólegt. Einhverjir náðu að leggja sig aðrir spiluðu einhversskonar þytleik , billjard og borðtennis. Enn aðrir náðu að gleyma sér yfir körfuboltaleik La Lakers og ??? eða það sem eftir var af honum þegar einhver datt niður á hann í sjónvarpinu. Seinni æfingin var í rólegri kantinum ekki eins mikið þrek og áður meira boltameðferð og tækni sem endaði með spili.

Kvöldmatur var tekinn í fyrra falli eða klukkan 18:00 við héldum að það væri vegna þess að það þyrfti að nota stóra salinn undir einhverskonar uppákomu en svo var ekki. Daninn vildi bara hætta fyrr.  Síðan vorum við skilin eftir ein í íþróttamiðstöðinni. Við sluppum ekkert við að skella okkur í sund. Það var tekið hressilega á rennibrautinni eins og venjulega. Það mætti segja að við erum heppin þ.e.a.s. krakkarnir að það er engin vörður. Fararstjóri eða þjálfari þurfa að taka að sér gæslu í lauginni ,við höfum reynt að vera sanngjarnir. Það var ágætt að þetta var síðasta kvöldið því uppátækin verða æ ævintýralegri ef svo mætti að orði komast. Við reynum hvað við getum að koma í veg fyrir að krakkarnir meiði sig í hamaganginum, en það er greinlega ákveðinn aldursmunum á því hvað þeim finnst í lagi og okkur.

Eftir sundið  var búið að útbúa fyrir okkur kvöldhressingu, þessi líka fína gulrótarkaka og þeir sem ekki vildu köku gátu fengið sér ávexti epli,appelsínu eða peru. Þetta nægði hinsvegar engan veginn það varð að fara í sjoppu! Eftir smá japl og jamm og einn billiard leik á milli okkar Daða var ákveðið að láta undan þrýstingi og taka kvöldgöngu. Þegar í sjoppuna var komið var því miður búið að loka , það munaði 5 mínutum! Sumir létu miklar tilfinningar í ljós en þetta var allt í lagi á endanum það var enginn að deyja úr hungri!(bara minni á það sem við sögðum í gær)

Á þessum göngutúr ákvað einn liðsmaður okkar að skilja eftir minnismerki um veru sína í Vildbjerg með því að merkja einn brunahana með nafni sínu. Hann hefði betur látið ógert að reyna það. Danskur nágranni brunahanans varð þess var og þrumaði yfir viðkomandi þannig að hann kom all skelkaður og gekk það sem eftir var göngutúrs á milli okkar Daða svona bara til að vera eilítið öruggari ef danska víkingasveitin vildi ná af honum tali. Ekkert alvarlegt en skemmtilegt að rifja upp einhverntíma.

Enn og aftur flottur hópur og við vitum ekki betur en að allir séu ánægðir.

Ps. Leiðinlegt að geta ekki sent ykkur myndir er að vonast til að kippa því í lag þegar við komum til Köben! Tengivandamál við myndavél.

Kveðja, DJD

Dagur 3 í Vildbjerg

Gærkvöldið endaði ekki eins og þjálfari og fararstjóri áætluðu. Krakkarnir voru orðin framlá og þreytt. Við samþykktum smá göngutúr í shellsjoppu á næsta horni. Krakkarnir nýttu tækifærið og byrgðu sig upp eins og framundan væri video kvöld með að minnsta kosti tveimur myndum. Það tók semsagt eitthvað lengri tíma en áætlað var að koma öllum í ró. Ró komst þó á um síðir og ekkert vesen.

Dagurinn rann upp með sól í heiði. Daði gekk á herbergin  og barði hressilega á hurðir til að vekja liðið upp. Það kom í ljós að margir í hópnum þurftu að æfa sig í að hitta ruslatunnurnar í herbergjunum , ástandið var æði misjafnt eins og gengur í stórum hópi. Einhverjir vildu meina að þeir væru ekki hér til að taka til. Það breyttist hinsvegar þegar í ljós kom að það yrði engin æfing fyrr en öll herbergi væru orðin hrein og fín og íþróttafélaginu Hamri til sóma. Æfingu var semsagt seinkað þar til öll herbergi voru eins og til var ætlast, ekki flögukorn á gólfi  og allt óæskilegt komið í ruslatunnurnar.  Það verður ekki sjoppa í kvöld!

Æfing frá 9:15 til 11:15

Eftir mat sem var eins og venjulega klukkan 12 héldum við smá fund með liðinu okkar. Hér í Vildbjerg er ekki mikið að gera annað en að vera í íþróttabúðunum. Ferðanefndin var búin að finna heilmikla afþreyingu fyrir hópinn hér á Jótlandi en því miður er allt í þónokkurri fjarlægð tímalega séð. Spjallaði við umsjónarmenn íþróttamiðstöðvarinnar hvert þægilegt væri að fara? Ég mætti undrunarsvip og síðan var ég spurður með vingjarnlegum tón hvort við hefðum ekki komið hingað til að vera hér? Niðurstaða fundarins með krökkunum var semsagt sú að við myndum nýta dagana hér í Vildbjerg í æfingar og nýta aðstöðuna hér til hins ítrasta, þar sem við myndum hafa mikinn frítíma í Kaupmannahöfn.

Æfing 15-17:30 tekið vel á því.

Kvöldmatur kl:19: 00

Fórum í sund eftir matinn þar sem  rennibrautin fékk að kenna á því mikið fjör. Það er aðeins einn í hópnum sem á eftir að prufa brautina en það hlýtur að hafast áður en dvöl okkar líkur. Daði koma svo!!!

Allir inn í sín herbergi klukkan 22.00 einhverjir voru enn vakandi klukkan 23:00 en eftir það var komin alger kyrrð á ganginum. Ótrúlegt en satt. Kæru foreldrar! Þið megið trúa því að krakkarnir eru að stunda sína íþrótt hér í Vildbjerg með miklum glæsibrag og eru sjálfum sér og sínum til mikils sóma.

Með bestu kveðju,

Davíð

 

Föstudagur, 22. maí 2009:

Dagur 2 í Vildbjerg

Vaknað klukkan 7:30 tók suma lengri tíma en aðra að vakna en þetta tókst allt á endanum.

Morgunmatur klukkan 8:00 alger snilld hjá Dönunum, eitthvað fyrir alla þannig að engin stóð upp svangur frá borðum.

Æfing klukkan 9:00 nú var tekið á því og púlað í bland við leikfræði undir handleiðslu Daða. Tek fram að leikfræðin fór öll fram á íslensku. Að lokinni æfingu klukkan 11:00 var slakað á í holinu, þar er hægt að spila borðtennis, billjard og fótboltaspil. Aðrir „chilluðu“ eins og einhverjir segja.

Matur klukkan 12:00 enn og aftur slóu Danirnir í gegn með gómsætum réttum bæði í kjöti og fisk þannig að allir fundu eitthvað við sitt hæfi. Eftir mat var skoðað annað íþróttahús 500 metra frá íþróttamiðstöðinni. Þar kom í ljós að það hentaði okkur mun betur, parketlagt og með fjórum körfum þannig að brúnin lyftist á þjálfaranum.

Eftir hádegismat var farið í göngutúr um bæinn og athugað hvort að ekki væri hægt að versla eitthvað nasl milli mála. Þegar hér var komið sögu voru tveir þegar búnir að spyrja hvað yrði í kvöldmat þannig að áhugamálin hér snúast um körfubolta og mat.

Að loknum göngutúr var haldið á ný til æfinga frá 15-17 Áhersla var á þrek og spil þannig að leikfræðin skili sér inn í leikinn hjá liðinu.

Átta búnir að spyrja hvað sé í kvöldmat! Semsagt hinkrað eftir kvöldmat og síðan farið í sund. Sundaðstaðan hefur slegið í gegn hjá öllum rennibraut, heitur pottur og síðan auðvitað sundlaug.

Fararstjóri og þjálfari gera ráð fyrir rólegu kvöldi ~~það á eftir að koma í ljós.:)

 

 

Fimmtudagur 21. maí 2009:

Hópurinn lagði af stað frá Hveragerði 4:30 stundvíslega í frábæru veðri. Flogið til Kaupmannahafnar og síðan tekin lest til Vildbjerg.
Allt gekk eins og best verður á kosið og allir komu heilir heislu til Vildbjerg kl:17:30.
Sportcenterið er frábært. Mættum sundliði sem er í buðunum á sama tíma og við. Her er frábær aðstaða fyrir sund, handbolta og fótbolta.
Hér eru að vísu 2 körfuboltakörfur þannig að aðstaðan fyrir körfubolta mætti bæta með því að fjölga körfum (greinilega ekki mikið fyrir körfubolta danirnir) Krakkarnir fóru í sund hér í sportsentrinu í kvöldþannig að engum hefur leiðst í dag.
Þegar þetta er skrifað erum við nýbúin að halda fund og málin rædd. Allir sáttir og hlakka til morgundagsins.

kveðja,  Davíð og Daði

Æfingaferð til Danmerkur í maí 2009.

Langþráð ferð, æfingahóps Hamars,  til Danmerkur hófst þegar hópurinn lagði af stað frá Hveragerði í býtið, fimmtudaginn 21. maí.

 

 

Íþróttafélagið Hamar, kennitala: 620492-2569