Eftir langa bið og undirbúning fór 9 flokkurinn (strákar og stelpur) loksins til Serbíu í æfingaferð. Fyrir neðan eru fréttir af ferðinni ásamt hlekk inn á myndasíðu. Myndir

02. ágúst 2007 | 08:41 /
Síðasti dagurinn í Serbíu er runninn upp.  Í gær fórum við í keppnisferð til Sremska Mitrovica sem er heimabær Bojan ÍR – ings.  Þar kepptu stelpurnar við stelpur fæddar 1995 og 1996, sem sagt um þremur árum yngri en okkar stelpur.  Við unnum leikinn 48 – 44 en ég hef sjaldan séð stelpurnar leika verr, hvorki fyrr né síðar....

01. ágúst 2007 | 09:36 /
Dagurinn í gær var frekar viðburðarlítill framan af, a.m.k. hjá mér.  Ég tók að mér vörslu á Bjarka og Ragga sem voru dæmdir í stofufangelsi yfir daginn vegna agabrota eins og sagði í pistli gærdagsins.  Ég vaknaði með krökkunum og kom þeim af stað.  Bojan hitti þau, Hadda og Huldu og kom þeim á verslunarslóðir í miðbæ Belgrad.  Sendi síðan ....

31. júlí 2007 | 09:00 /
Síðasti dagurinn í búðunum rann upp bjartur og fagur (eins og venjulega).  Ég var búinn að fara yfir helstu úrslit í þeim keppnum sem fóru fram á sunnudeginum.  Því miður er ólíklegt að ég geti látið myndir fylgja þessum pistli og sennilega ekki þeim sem eftir koma.  Internet þjónusta og tengingar eru...

30. júlí 2007 | 09:10 /
Síðasti heili dagurinn í búðunum var viðburðaríkur.  Úrslit í margskonar skotkeppni fóru fram og svo keppni í einn á einn og þrír á þrjá.  Helga keppti í einn á einn og komst í úrslit en tapaði þar fyrir dreng sam var töluvert stærri en hún.  Annað sæti, mjög góður árangur.  Oddur keppti líka ...

29. júlí 2007 | 08:58 /
Dagurinn í dag er síðasti heili dagurinn í búðunum.  Við ætlum að fá okkur pizzu í kvöld með krökkunum og njóta þess að sleppa mötuneytismatnum.  Við Haddi eigum eftir að skipuleggja það í samvinnu við þjálfara hópanna og vonandi gengur það upp.  Á morgun förum við með rútu til Belgrad og...

28. júlí 2007 | 09:42 /
Undanfarið hefur veðrið verið mun betra til að stunda æfingar.  Hitinn á daginn hefur verið 20 – 24 stig og sól.  Alveg kjör aðstæður til æfinga.  Nokkrir krakkar eru aðeins farnir að finna til í hnjánum enda malbikið talsvert harðara en parket eða dúkur sem þau eru vön ....

27. júlí 2007 | 11:18 /

Við heimsóttum mötuneyti krakkanna eitt kvöldið.  Mikið var búið að tala um vondan mat en þetta kvöldið var maturinn í skárra lagi.  Steikt kjötstykki (ekki ósvipað hamborgurum), franskar sem reyndar virtust hafa verið steiktar fyrir all löngu og ferskjur í eftirrétt.  Krökkunum líkaði þetta ágætlega.  Fyrirkomulagið við


26. júlí 2007 | 08:43 /
Af nógu er að taka.  Morguninn var bjartur og fagur en mun kaldari en hingað til.  Þegar maður steig út úr hótelinu klukkan hálftíu þá fór um mann kuldahrollur.  Var maður ekki lengur í útlöndum?  Hitinn var um 14 gráður en sólin skein og í geislum hennar var manni ekki kalt.  Allir krakkarnir fengu ....

25. júlí 2007 | 09:54 /
Ég var aðeins of fljótur á mér að segja að krakkarnir með sólstinginn hefðu jafnað sig.  Þau Íris og Júlli voru jú mun betri og fóru á æfingu í gærmorgun en urðu að fara af æfingunni.  Þau slepptu seinni æfingunni og þegar við hittum þau í gærkvöldi þá voru þau .....

24. júlí 2007 | 11:16 /
Mánudagurinn var ekkert frábrugðinn öðrum dögum hér í Kopaonik.  Sól og blíða.  Ég er alltaf að spyrja Huldu hvaða vikudagur er og hvaða dagsetning þannig að ég ruglist ekki í pistilskrifum og sendi gamla pistla aftur.  Allir dagar eru eins og ekkert sem gefur til kynna ...

23. júlí 2007 | 08:35 /
Sunnudagurinn rann upp bjartur og fagur eins og aðrir dagar hérna í Kopaonik.  Góðar fréttir bárust í morgunsárið þess eðlis að ró var að mestu komin á ganginn okkar fljótlega upp úr klukkan ellefu á laugardagskvöldið.  Allir mjög þreyttir eftir tvær æfingar ...

22. júlí 2007 | 12:56 /
Eins og sagði í pistlinum í gær þá hófust æfingar af krafti í gær, laugardag og var mannskapurinn nokkuð lúinn eftir daginn.  27 stiga hiti og sól mest allan daginn og því frekar erfitt og þreytandi að hlaupa ....

21. júlí 2007 | 11:20 /
Eins og sagði frá í gær þá komum við í körfuboltabúðirnar í gær.  Herbergjum var úthlutað til krakkanna og dagurinn fór í að rannsaka umhverfið.  Kynningarfundur var haldinn með öllum þátttakendum og þjálfurum kl. 18.00 og þar var hópnum skipt niður eftir......

20. júlí 2007 | 13:31 /
Ferðalagið frá Keflavík til Belgrad


Á Döfinni

10. febrúar 2012 | 19:15

11. febrúar 2012 | 16:30

16. febrúar 2012 | 18:30




Íþróttafélagið Hamar, kennitala: 620492-2569