Helgina 10-11 febrúar verður haldin körfuboltahátíð á Selfossi þar sem iðkenndur í minnibolta víðsvegar á suðurlandinu koma saman og keppa sér til gamans og einnig verður margvísleg afreying til boða. Þetta er í fyrsta sinn sem Hamar/Selfoss blæs til þesskonar körfuknattleikshátíðar og hefur mótið fengið nafnið Svalamótið. Leikir verða 2x12 mín og verða stig ekki talin og áhersla lögð á að allir hafi gaman af.