Hver flokkur með sitt blog-svæði.

26. nóvember 2009 | 11:06 /

Stjórn yngriflokka í samráði við þjálfara hafa sett í loftið samskiptasíður (blogg-síður) fyrir hvern flokk fyrir sig. Þar fara fram dagleg samskipti og skilaboð frá þjálfara til iðkenda og foreldra. Krækjur á viðkomandi síður eru;

3. flokkur             http://hamar3.blogcentral.is/

4. flokkur             http://4flokkur.blogcentral.is/

5. flokkur             http://hamar5.blogcentral.is/blog/

6. flokkur             sama slóð og hjá 5 flokki eins og er.      (Þó er til http://hamar6.blogcentral.is/)

7. flokkur             http://hamar7.blogcentral.is/blog/

8. flokkur             http://hamar8.blogcentral.is/

Kvenna yngri      http://hamaryngrikvenna.blogcentral.is/blog/

Kvenna eldri       http://hamareldrikvenna.blogcentral.is/blog/

Kv. Óli Jó.



 

Hvað segir þjálfarinn?
23. janúar 2007 | 15:21 /

Knattspyrnuþjálfun yngri flokka.


Íþróttir eru uppeldisstarf. Þar læra börn m.a. að fylgja reglum, stundvísi og sjálfsaga. Mikilvægt er að hver og einn fái með iðkun íþrótta tækifæri til að upplifa sjálfan sig á jákvæðan hátt og öðlast sjálfstraust og sjálfsvirðingu.

Í þjálfun yngri barna á að koma til móts við þarfir barnanna á þeirra eigin forsendum og gefa þeim tækifæri til að glíma við verkefni sem hæfa þroska þeirra og getu.

Þjálfarar þurfa að sjá um að iðkendur fái verkefni við sitt hæfi, aðstoða þá í þjálfuninni, hvetja þá til áframhaldandi iðkunar og sjá til þess að þeir tileinki sér hollar og heilbrigðar lífsvenjur. Þá er lögð á það áhersla að þjálfarar séu í góðu sambandi við foreldra iðkenda. Þjálfarinn er einnig mikilvæg fyrirmynd barna og ungmenna og honum ber því að sýna gott fordæmi, bæði innan og utan vallar.

 

Hamar hefur metnaðarfulla sýn hvað varðar þjálfun yngri flokka félagsins og Það er stefna félagsins að vera með menntaða þjálfara í öllum flokkum, þjálfara með fagþekkingu á sviði þjálfunar og kennslu. Árangur í starfi þjálfara verður metinn með hliðsjón af félagsstarfi iðkenda, líðan þeirra, áhuga, fjölda og brottfalli en ekki út frá úrslitum í keppni.

Úrslit í keppni er ekki aðalatriði, heldur  frammistaða iðkendur. Framkoma barns sem æfir hjá Hamri á að einkennast af leikgleði, kurteisi, vinnusemi og íþróttamannslegri framkomu.

Til að ná þessum einkennum fram hjá börnum leggjum við áhersla á eftirfarandi atriði:

1. Ég er jákvæður og í góðu skapi á æfingum og í leikjum, því mér finnst gaman í   fótbolta.

2. Ég er stundvís, ég mæti a.m.k. 10 mín. fyrir æfingar og á réttum tíma í leiki.

3. Ég legg mig alltaf 100 % fram.

4. Ég hjálpa samherjum eins og ég get á æfingum, í leik og hvar sem er.

5. Ég ber virðingu fyrir Hamarsbúningnum og geng snyrtilega frá honum eftir leiki. Sama gildir um aðrar eignir Hamars.

6. Ég geng vel um búningsklefa, íþróttasali og íþróttavelli, bæði í Hveragerði og annars staðar þar sem ég kem sem mótherji, gestur eða áhorfandi.

7. Ég kem kurteislega fram við mótherja , því ég vil að hann komi vel fram við mig.

8. Ég mótmæli aldrei úrskurði dómara.

9. Ég tek sigri með hóflegri gleði og tapi með jafnaðargeði.

10. Ég reyni alltaf að vera félaginu og mínum nánustu til sóma, innan vallar sem utan.

 

Með fótboltakveðju,

Antoine van Kasteren, yfirþjálfari yngri flokka Hamars.




Á Döfinni




Íþróttafélagið Hamar, kennitala: 620492-2569