frettalogo

Fjáröflunarreglur knattspyrnudeildar Hamars

  1. Fjáraflanir einstakra flokka skulu vera á vegum viðkomandi foreldraráðs eða iðkenda sjálfra, ef þeir eru 18 ára eða eldri. Áður en ráðist er í fjáröflun skal viðkomandi hópur eða foreldraráð tilnefna ábyrgðarmenn fjáröflunarinnar.
  1. Áður en ráðist er í fjáröflun á vegum einstakra flokka innan deildarinnar skal liggja fyrir samþykki stjórnar knattspyrnudeildarinnar. Fjáröflunarbeiðnir skula sendar á hamarknattspyrnastjorn@gmail.com. Leita skal samþykkis með eins góðum fyrirvara og unnt, tilgreina í hverju fjáröflun er fólgin og til hvaða verkefna verja skal ágóða. Ef einstakir flokkar hyggja á  fleiri en eina fjáröflun á árinu skal skila inn lauslegri fjárhagsáætlun með markmiðum um heildar tekjur og gjöld.
  1. Áður en fjáröflun hefst, skal liggja fyrir hvernig ágóða af fjáröflun verði varið. Hvernig skipting fjár er ráðstafað er á forræði hvers flokks, en æskilegt er að ágóði af fjáröflunum sé merktur viðkomandi einstaklingi sem tekur þátt í fjáröflun fremur en að um sé að ræða sameiginlegan sjóð. Foreldraráð viðkomandi flokks ber ábyrgð á að upplýsingar um slíka skiptingu séu öllum kunnar enda hafi þær verið ræddar og samþykktar af þeim sem að söfnuninni standa og í samræmi við reglur félagsins.
  1. Allar fjáraflanir yngri flokka skulu vera í því formi að ákveðin gæði komi til afhendingar gegn gjaldi þ.e. að um einhverskonar sölustarfsemi sé að ræða eða að vinna sé innt af hendi. Ekki er heimilt að leita beint til fyrirtækja um beinan fjárstuðning þar sem slíkt getur stangast á við fjáraflanir deildarinnar til sameiginlegra verkefna, nema með samþykki stjórnar deildarinnar.
  1. Í lok hvers tímabils skal  foreldraráð skila inn til Yngriflokkaráðs, yfirliti (rekstrarreikningi) yfir fjáraflanir; tekjur og til hvaða verkefna peninga var varið.
  1. Æskilegt er að einstaklingar sem afla fjár til starfsemi Knattspyrnudeildar séu við fjáraflanir merktir félaginu og gefi upplýsingar fyrir hvern og til hvaða verkefnis fjárins er aflað.
  1. Fjáröflun skal miðast við að standa straum af beinum kostnaði vegna viðburðar, svo sem kostnaði við þáttöku í mótum, beinum ferða- og dvalarkostnaði, auk kaupa á sameiginlegum æfinga-og utanyfirfatnaði sem hópurinn hefur sammælst um. Eingöngu skal safnað fyrir kostnaði vegna iðkenda sjálfra og eftir atvikum fyrir fararstjóra og þjálfara.
  1. Þannig er óheimilt að safna fé til einkaneyslu í nafni deildarinnar. Til einkaneyslu telst öll önnur neysla en sem til er stofnað vegna verkefna og viðburða á vegum viðkomandi flokks og hafa verið rædd og samþykkt af iðkendum og/eða foreldrum.
  1. Einstaklingar geta ekki fendið endurgreitt það sem safnast hefur þótt viðkomandi hætti við að taka þátt í þeim viðburði sem safnað er fyrir. Í slíkum tilvikum rennur fé sem merkt var viðkomandi einstaklingi í sameiginlegan sjóð flokksins.

Ábyrgðarmenn fjáröflunar geta sótt um undanþágur frá reglum þessum. Stjórn Knattspyrnudeildar Hamars er heimilt að veita undanþágur að fengnum meðmælum viðkomandi foreldraráðs. Stjórn Knattspyrnudeildar Hamars úrskurðar um öll ágreiningsmál sem upp kunna að koma í tengslum við safnanir á vegum félagsins og getur sett nánari reglur ef slíkt telst nauðsynlegt.