30. júlí 2010 | 11:55 / Knattspyrnudeild

Eldri flokkar Hamars hafa æft 4 - 5 sinnum í viku og hafa stöðugt verið að bæta sig.
4. flokkur hefur verið mjög vaxandi á Íslandsmótinu í sumar og leikmenn hafa tekið miklum framförum. Flokkurinn fór á fjölmennt alþjóðlegt mót, ReyCup sem haldið var í Laugardalnum dagana 21. – 25. júlí og stóð sig þar með sóma og endaði í 4. sæti. Ekki skemmdi fyrir að leikmönnum fannst mjög gaman á mótinu og hefur sett stefnuna á að fara aftur á næsta ári.
3. flokkur í sameiginlegu liði Hamars og Ægis hefur tekið þátt í Íslandsmótinu og gengið upp og niður, en þó eru greinileg batamerki hjá liðinu. Flokkurinn fór líka ReyCup og stóð sig þar með sóma og endaði í 3. sæti. Nokkrir leikmenn úr 4. flokki hafa fengið að spreyta sig með 3. flokki og hafa þeir staðið sig ágætlega.


30. júlí 2010 | 10:54 / Knattspyrnudeild

5. og 6. flokkur í sameiginlegu liði Hamars og Ægis hefur tekið þátt í B riðli 5. flokks á Íslandsmóti KSÍ í sumar og staðið sig vel. Við erum með fjögur lið og fyrirfram var búist við því að á brattann yrði að sækja, en liðin eru sífellt að ná betur saman eftir því sem strákarnir kynnast betur. Dagana 30/6 – 3/7 tóku drengirnir þátt í skemmtilegu N1 móti á Akureyri , sem er fjölmennasta mót sem haldið er fyrir 5. flokk á landinu. Leikir unnust og töpuðust á víxl en liðin luku mótinu með sigrum og allir skemmtu sér hið besta, sem er að sjálfsögðu aðalmálið.


30. júlí 2010 | 10:52 / Knattspyrnudeild

Sumarið er tíminn þegar mest er um að vera hjá knattspyrnumönnum og hafa æfingar hjá yngri flokkum Hamars hafa verið 3-4 sinnum í viku á Hamarsvelli í allt sumar. Æfingarnar hafa gengið vel og lið frá Hamri hafa bæði tekið þátt í Íslandsmóti og öðrum mótum og verið sér og félaginu til sóma.  21. júlí voru Knattþrautir KSÍ haldnar í Hveragerði og fannst krökkunum mjög gaman að því.  7. flokkur og yngri flokkur stúlkna komust því miður ekki á neitt af stærri mótum sumarsins, en fóru þess í stað á mót á Flúðum 22. júlí og skemmtu sér ágætlega.


06. júní 2010 | 00:00 / Knattspyrnudeild
Hamar tapaði síðum öðrum leik í deildinni á laugardag þegar liðið heimsótti Hvöt á Blönduósi. Engin gestrisni var til staðar hjá heimamönnum og komust þeir í 2-0 eftir 10 min leik.  Hveragerðis ættaði, Jens Elvar Sævarsson, skoraði annað markið. Hamar náði að halda sjó eftir þetta en náði ekki að ógna norðanmönnum að neinu marki. Hamar situr nú í 8. sæti deildarinnar með 4 stig eftir 4 umferðir.  Mætum á völlinn og hvetjum svo strákana á laugardaginn kl. 13 þegar BÍ/Bol. kemur í heimsókn.

29. maí 2010 | 08:00 / Knattspyrnudeild
Hamarsmenn mættu grimmir til leiks eftir slæmt tap í Sandgerði.  Snemma leiks náði Ágúst Ingi Magnússon forystunni fyrir Hamar og bætti svo við öðru marki í síðari hálfleik.  Hefði hann með smá heppni átt að setja þrennuna, en hún bíður betri tíma.  Góður leikur Hamars og fínt að sjá liðið koma sterkt til baka eftir seinasta leik.  

21. maí 2010 | 23:00 / Knattspyrnudeild
Hamri var skellt niður á jörðina eftir ágæta byrjun Íslandsmótsins með slæmu tapi gegn Reyni Sandgerði.  Atli Sigurðsson skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Hamar,  en eftir það setti Reynir 6 mörk og 1-6 tap staðreynd.  


 

Skrifstofa

Forráðamenn Knattspyrnudeildar

Valgeir Ásgeirsson Formaður
Erla Pálmadóttir Ritari
Rúna Einarsdóttir Meðstjórnandi
Eyjólfur Harðarson Mfl.ráð karla
Halldóra Rut Bjarnadóttir Mfl.ráð kvenna
Steinar Logi Hilmarsson Unglingaráð
   
Ómar I. Guðmundsson Þjálfari yngri fl.
....óskast..! Vefumsjón




Tilkynningar



Á Döfinni

11. september 2010 | 14:00


Íslandsmót 2. deild. Leikurinn fer fram á Siglufjarðar-velli, laugardaginn 11. sept. kl. 14.
18. september 2010 | 14:00


Íslandsmót 2. deild. Leikurinn fer fram á Grýlu-velli, laugardaginn 18. sept. kl. 14.



Hver er besti rútubílstjóri Hamars


4.2% Lárus Ingi Friðfinnsson

25.0% Valgeir Ásgeirsson

25.0% Eyjólfur Harðarson

45.8% Steinar Logi Hilmarsson


Íþróttafélagið Hamar, kennitala: 620492-2569