Laugasport hefur gert samning við knattspyrnudeild - og körfuboltadeild Hamars sem hefur í för með sér að árskortshöfum Laugasports eru veitt ókeypis aðgangur að deildaleikjum meistaraflokkana í Hveragerði.
Veittur er ókeypis aðgangur að heimaleikjum úrvalsdeildaliða körfuboltadeildarinnar (kvenna og karla) en fyrir knattspyrnudeildin tekur samningurinn í raun ekki gildi fyrir en næsta tímabil byrjar 2010.
Fyrirkomulagið verður þannig að forráðamenn deildanna eiga að vera með uppfærða nafnalista yfir árskortshafa Laugasports þannig að það á að duga að segja til nafns en það er að sjálfssögðu alltaf best að mæta með árskortið þegar þið farið að styðja liðin okkar.
Eitt sem þarf kannski að undirstika. Samningurinn við körfuboltadeildina tekur ekki til bikarleikja né leikja í úrslitakeppninni.