
Körfuknattleiksdeild Hamars hefur skrifað undir 2ja ára samning við Hallgrím Bynjólfsson sem þjálfara kvennaliðs félagsins en frá samningum var gengið í íþróttahúsi Hveragerðis 2.maí . Haddi þekkir nokkuð vel til innviða í Hveragerði og mikil ánægja með að fá hann til starfa hjá félaginu.
Mikill hugur er í stjórn, leikmönnum og þjálfara að endurheimta úrvalsdeildarsæti og ljóst að flestallar íslensku stelpurnar verða áfram í Hveragerði. Æfingar undir stjórn nýs þjálfara hefjast á allra næstu dögum.
Af karlaliðinu er ......
Dagný Lísa Davíðsdóttir var valin á dögunum í U-15 ára landsliðið í körfubolta en hún er jafnframt í U-16 ára landsliðinu þannig hún hefur sitthvað við að vera núna í vor og sumar! U-16 ára landsliðið fer á NM í Solna núna í maí og U-15 ára landsliðið fer á aðþjóðlegt mót í júní og etv. fleiri verkefni. Með Dagnýju á NM verða Nína Jenny Kristjánsdóttir (FSu/Hamar U-16) og Marín Laufey Davíðsdóttir sem keppir með U-18.
KKd. Hamars hélt lokahóf meistaraflokka karla og kvenna miðvikudaginn fyrir páska og heppnaðist vel. Eins og undangengin ár var heiðraðir þeir leikmenn sem þóttu standa sig best á nýliðnu tímabili. Stjórn, leikmenn og þjálfarar völdu bestu leikmennina, Marín Laufey Davíðsdóttir best kvenna og Ragga Nat bestan drengjanna en Marín var einnig heiðruð fyrir mestar framfarir af þjálfara sínum Lárusi Jónssyni. Mestar framfarir hjá drengjunum sýndi Bjartmar Halldórsson. Michael Kristjáns fékk viðurkenningu fyrir góðan varnarleik sem og Kristrún Rut Antons hjá stelpunum. Að endingu útnefndi Lárus þjálfari þau Álfhildi Þorsteins og Kristinn(Didda) Runólfs "mestu dugnaðarforkana" í sínum liðum.
Emil Þorvalds vann hinn forláta "Hamar" í ár og var hann einnig veittur á staðnum. Þjálfarar fengu þakklætisvott frá leikmönnum og stjórnin páskaegg! Að Lokum fékk Svavar Páll Pálsson viðurkenningu frá KKd. Hamars fyrir 340 meistaraflokksleiki en meistarinn segist vera búinn að leggja skónna á hilluna.
...

Það er orðið hlutskipti okkar stúlkna að falla í Iceland Expressdeild kvenna eftir stormasaman en engu að síður skemmtilegan vetur þar sem stelpurnar sýndu oft á tíðum frábæra takta og efniviðurinn kannski aðeins of ungur og skakkaföllin einum of mörg framan af vetri. Engu að síður stigu upp ný og gömul andlit sem aldrei gáfu tommu eftir og eiga allar stelpurnar hrós skilið. Síðasti leikur þeirra í deildinni að sinni er núna á laugardag kl. 17.30 hér heima og hvetjum við alla til að koma og sína þeim stuðning á móti Haukum.
Strákarnir okkar eru í umspili um eitt laust sæti í úrvalsdeild í haust og mæta ÍA hér heima á föstudagskvöld og upp á Skaga á sunnudag! Það lið sem fyrr vinnur 2 leiki fer í lokarimmu við Skallagrím eða Hött sem eigast við á sama tíma í hinum hluta úrslitanna. Alli á Hamar - ÍA, föstudagur kl.19.15 hér upp í húsi ...ÁFRAM HAMAR!

Það var sveiflukendur leikur í kvöld og 3. sigur Fjölnis í röð!
| Lárus Ingi Friðfinnson -form. | fax660-1618 |
| Sóley Guðgeirsdóttir - Gjaldk. | fax862-4228 |
| Birgir S. Birgissonn - Ritari | fax893-4190 |
| Jóna Guðjónsdóttir - mfl kvk | fax483-4613 |
|
Anton Tómasson (heimasíða) |
fax660-1612 |
Borðið hollan og góðan mat fyrir og sérstaklega eftir æfingar. Mjög sniðugt að hafa með sér ávöxt og borða strax eftir æfingar, sérstaklega erfiðar æfingar!






































































