03. mars 2010 | 00:16 /
Körfuboltadeild

Stelpurnar í undanúrslit


Stelpurnar fóru til Keflavíkur í kvöld til þess að freista þess að vinna sinn 1. sigur á þeirra heimavelli. Leikurinn fór þannig að stelpurnar okkar unnu með 16 stiga mun 101-85. Þar með tóku þær 2. sætið í deildinni af Keflavík og þar sem að efstu 2 sætin gefa farmiða beina leið í undanúrslit úrslitakeppnarinnar eru stelpurnar okkar komnar í örlitla leikjapásu þangað til að 8 liða úrslitin klárast.

Hér er nánari umfjöllun um leikinn

Stig Hamars í kvöld:
Julia Demirer, 22 stig, 16 fráköst
Sigrún Ámunda, 20 stig, 13 fráköst
Fanney Lind, 18 stig
Kristrún og Koren með 13 stig
Guðbjörg með 11
Sóley með 3 og Hafrún 1.

Hjá Keflavík var það Kristi Smith sem var atkvæðamest með 27 stig.
Næst henni kom Birna Valgarðs með 15
Pálína Gunnlaugs með 13
Svava Stefáns með 12
Bryndís Guðmunds með 11
Hrönn Þorgríms með 4
Eva Guðmunds með 3




Íþróttafélagið Hamar, kennitala: 620492-2569