16. febrúar 2012 | 22:16 / Körfuboltadeildat

Það var fjörugur leikur Hamars/FSu og Grindavíkur í stúlknaflokki í kvöld þar sem Hamar/FSu unnu í framlengdum leik 67-59.  Ljóst er að stelpurnar keppa í úrslitum við Njarðvík helgina 24-25.febrúar nk. Til hamingju með þetta stelpur.

Dagný Lísa Davíðsdóttir (U-16) og Marín Laufey Davíðsdóttir (U-18) voru einnig að fá þau skilaboð að þær hafa verið valdar í 12 manna hóp í sínum aldursflokk. Reyndar er Dagný gjaldgeng í U-15 landsliðið en engu að síður valin í U-16. Marín er á 17 ári þannig að hún er einnig að glíma við sér eldri stelpur og vön því! 

Að lokum aðeins að mfl. karla í körfunni en þeir gerðu sneipuför austur og töpuðu fyrir Hetti í kvöld 84-70 og ekki gott mál. Svavar Páll var ekki með en nýr kani var með að þessu sinni (C.Wooten) en Hattarmenn betri allan tímann.


11. febrúar 2012 | 20:29 / Körfuboltadeildat

Hamar unnu ÍA í 1.deild karla á föstudagskvöldið 87-78 eftir að hafa leitt allan tímann og við það styrktu strákarnir stöðu sína varðandi úrslitakeppnina þar sem þeir sitja nú í 3.sæti með 16 stig og næst leikur við Hött á útivelli.  Á föstudaginn voru stóru mennirnir í okkar liði að gera góða hluti, Raggi með 11 stig/12 fráköst og Svavar með 19 stig/10 fráköst. Mest skoraði þó Louie sem skroaði 24 stig, þar af 16 á 8 mínútna kafla í 2.leikhluta. Breiddin var mun meiri hjá Hamri og einnig gaman að sjá Hjalta Val inn á dúknum aftur eftir meira en árs fjarveru eftir krossbandaslit!

Stelpurnar bættu svo um betur í dag og unnu KR á útivelli 69-72 eftir að hafa leyft KR að halda 1-10 stiga forustu fyrri hluta leiksins en það sama má segja um Hamars-stelpur líkt og strákana að þær sýndu meiri breidd en stórveldi KR og spiluðu á fleiri leikmönnum. Murphy skoraði 22 stig /5 fráköst og Katherine bætti um betur með 26 stig/12 fráköst/4 stoðsendingar og 4 stolna bolta.

Nánari tölfræði inn á www.kki.is


03. febrúar 2012 | 22:14 / Körfuboltadeildat
Sigur liðsheildar á Selfossi í kvöld þar sem FSu leiddi eftir fyrsta hluta og veitti okkar mönnum hörku keppni allan leikinn. Hamar hafði þó sigur í lokin 68-85 en stigaskor dreyfðist mikið hjá báðum liðum. Hjá FSu skoruð 8 menn og hjá okkar strákum settu 11 leikmenn stig sem er frekar sjáldséð í körfunni.

Eftir sigurinn situr Hamar enn í 3. sæti og FSu er áfram í 3. neðsta sæti.  ....

02. febrúar 2012 | 08:54 / Körfuboltadeildat
3 sigrar í röð hjá Hamri á 8 dögum!

Gústu kom í heimsókn og nokkur spenningur í loftinu enda bæði lið með góð úrslit í farteskinu. Valur búinn að rúlla yfir KR í síðasta leik og Lárus með okkar stelpur búinn að vinna Snæfell og Fjölni í leikjunum á undan.

Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir okkur og Valur komst í 0-7 og bætti heldur í  ....
...

30. janúar 2012 | 13:37 / Körfuboltadeildat

Það er í mörgu að snúast hjá Marín Laufey Davíðsdóttir og þessi efnilega körfuboltakona æfir og keppir einnig í glímu fyrir HSK. Laugardagurinn sl. var hún að keppa í Bændaglímunni og gerði sér lítið fyrir og sigraði þar í opnum flokki. Eftir glímutökin var leikur við Fjölni í körfunni á dagskrá og þar stóð hún sig ekki síður vel. Marín var í byrjunarliði og átti stóran þátt í sigri Hamars með 12 stig og 11 fráköst á þeim 30 mínútum sem hún spilaði. Hún er í úrtaki fyrir U-18 ára landsliðið í körfu en hún verður 17 ára á árinu. Ósagt skal látið hvort glímutökin nýtinst á gólfinu en alla vega hefur þetta vakið athygli víða og hér er smá umfjöllun og viðtal við Marín á visri.is 

Minnum svo á leik Hamar kvenn a geng val hér heima á miðvikudaginn kl.19.15 ÁFRAM HAMAR!


28. janúar 2012 | 23:08 / Körfuboltadeild

Hamars konur gerðu góða ferð í Grafarvoginn í dag og unnu góðan sigur á Fjölni 76-81 eftir að hafa leitt lengi vel með yfir 20 stiga mun. Leikurinn var mikilvægur fyrir framhaldið en eftir leikinn er Hamar aðeins einum sigurleik á eftir Fjölni á töflunni og með betri stöðu í innbyrgðis viðureignum.

Hamar vann fysta hlutann 21-28 og annan leikhluta einnig 12-14 .........

...




Kaupið farmiða ykkar hér. Hluti af andvirði miðana rennur til körfuknattleiksdeildarinnar
23. september 2011 | 13:15


Borðið hollan og góðan mat fyrir og sérstaklega eftir æfingar. Mjög sniðugt að hafa með sér ávöxt og borða strax eftir æfingar, sérstaklega erfiðar æfingar!






Skrifstofa

Forráðamenn Körfuknattleiksdeildar

Lárus Ingi Friðfinnson -form. fax660-1618
Sóley Guðgeirsdóttir - Gjaldk. fax862-4228
Birgir S. Birgissonn  - Ritari fax893-4190
Jóna Guðjónsdóttir - mfl kvk fax483-4613

Anton Tómasson (heimasíða)

fax660-1612
 




Tilkynningar


Á Döfinni

24. febrúar 2012 | 19:15


Ármann - Hamar í 1.deild karla kl.19.15
26. febrúar 2012 | 14:00


Hamar/FSu - Njarðvík ÚRSLIT Bikarkeppni Stúlknaflokks.  Leikurinn er að Hlíðarenda (Val) kl. 14.00  Áfram Hamar/FSu!
29. febrúar 2012 | 19:15


Hamar - Njarðvík IExpressdeild kvenna kl. 19.15  Allir á völlinn!
02. mars 2012 | 19:15


Hamar - Þór Ak. í 1.deild karla. Síðasti heimaleikur fyrir úrslitakeppni!
03. mars 2012 | 15:00


Snæfell - Hamar í IExpressdeild kvenna.
07. mars 2012 | 19:15


Hamar - Fjölnir í IExpressdeild kvenna kl.19.15.  Allir á völlinn!



Íþróttafélagið Hamar, kennitala: 620492-2569