Hér að neðan eru tenglar inn á Facebooksíður flokka knattspyrnudeildarinnar sem notaðar eru fyrir tilkynningar og fréttir. Iðkendur, foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að skrá sig þar inn til að fá nýjustu upplýsingar um starf hvers flokks hverju sinni.
Ef smellt er á viðkomandi flokk, þá flyst þú inn á síðu hans.
Íþróttir eru uppeldisstarf. Þar læra börn m.a. að fylgja reglum, stundvísi og sjálfsaga. Mikilvægt er að hver og einn fái með iðkun íþrótta tækifæri til að upplifa sjálfan sig á jákvæðan hátt og öðlast sjálfstraust og sjálfsvirðingu.
Í þjálfun yngri barna á að koma til móts við þarfir barnanna á þeirra eigin forsendum og gefa þeim tækifæri til að glíma við verkefni sem hæfa þroska þeirra og getu.