16. maí 2012 | 13:57 / Knattspyrnudeild

Hamarspiltar féllu úr leik í bikarkeppni KSÍ í gær. Þrátt fyrir stuttbuxnaveður og blíðu inn í Kórnum, knattspyrnuhöll Kópavogsbúa, var algert frost í leik Hamarsmanna og lítið meira um það að segja.

 

Meira hér…


15. maí 2012 | 10:35 / Knattspyrnudeild

 

Meistaraflokkur Hamars mætir til leiks í bikarkeppni KSÍ í kvöld er þeir heimsækja lið Augnabliks í knattspyrnukór Kópavogsbúa. Leikið verður innanhúss enda veðurfarið ekki verið upp á marga fiska undanfarið, þó Hamarsmenn kvarti ekki enda beiðni um þetta fyrirkomulag ekki komið frá Hveragerði, þó það komi sér vissulega vel í þessu tíðarfari. Leikurinn hefst stundvíslega kl. 19:00 í logni og rjómablíðu, óháð ytri veðurskilyrðum.

Meira hér…


12. maí 2012 | 15:02 / Knattspyrnudeild

Hamarsmenn fengu í heimsókn til sín á Grýluvöll spræka Gróttupilta frá Seltjarnarnesi, sem spáð er 3. sæti í deildinni af forráðamönnum og fyrirliðum annarra liða samkvæmt vinsælli sparkspekingasíðu.

 

Það er þó nokkuð ljóst að fyrirliði Hamars og forráðamenn tikkuðu ekki Gróttuna ofar en sig sjálfa, því strax frá fyrstu mínútu tóku heimamenn völdin á vellinum. Hann var þó ekki beint suðrænn og seiðandi boltinn sem leikinn var á Grýluvelli, meira svona “loksins-kominn-á-gras-út-í-rigninguna” bolti.


Meira hér...


30. apríl 2012 | 08:59 / Knattspyrnudeild

Það eru gleðilegar fréttir að æfingar skuli hefjast að nýju hjá stelpum í Hveragerði, en Knattspyrnudeild Hamars hefur ráðið Hjalta Val Þorsteinsson sem þjálfara fyrir 4. flokk kvenna í knattspyrnu. Flokkurinn hefur æfingar á næstu dögum og verður æft 2 – 3 x í viku frá maí – ágúst. Stefnt er að því að fara með stelpurnar á eitt eða fleiri opin mót í sumar og fljótlega verður haldinn foreldrafundur um málið.

Skráning er hafin hjá Ólafi Jósefssyni yfirþjálfara yngri flokka í gsm. 821 – 4583, olafur@hveragerdi.is. Nú þegar hafa 12 stelpur skráð sig, úr 6., 7. og 8. bekk, og búið er að stofnað fésbókarsíðu fyrir flokkinn.


19. mars 2012 | 08:40 / Knattspyrnudeild

 Knattspyrnudeild Hamars í Hveragerði auglýsir eftir knattspyrnuþjálfara fyrir 1 – 2 yngri flokka deildarinnar. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Þessa dagana er æft innahúss í íþróttahúsi bæjarins, en í vor færast allar æfingar út á gras-æfingasvæði.

Möguleiki er á áframhaldandi starfi næsta haust þegar æfingar hefjast í nýrri, glæsilegri og upphitaðri knattspyrnuhöll í Hveragerði.


10. febrúar 2012 | 13:48 / Knattspyrnudeild
Eftir brotthvart Jóns Aðalsteins sem þjáflara Hamars í mfl. í fyrrahaust og ráðningu Salih Heimis Porca í hans stað var ljóst að einhver umskipti yrðu á leikmannahópnum milli ára. Nú er ljóst að Hamar hefur styrkt sig fyrir komandi átök í sumar með því að krækja í fimm nýja leikmenn.

Leikmennirnir sem um ræðir eru Andy Pew, Andri Magnússon, Högni Haraldsson, Jón Steinar Ágústsson og Vignir Daníel Lúðvíksson.
Pew er mikill liðstyrkur en hann er enskur miðvörður og kemur frá Árborg, þar sem hann spilaði alla leikiina í deildinni í fyrra og skoraði eitt mark. Hann lék einnig með Selfyssingum 2006 og 2007.
Högni er fæddur árið 1986 en hann er uppalinn hjá ÍA´og kemur til okkar eftir árs frí frá knattspyrnuiðkunn en áður spiaði hann með Skallagrími og ÍA í þriðju deildinni.
Jón Steinar er uppalinn Víkingur en hann hefur leikið með Berserkjum undanfarin ár. Síðastliðið sumar skoraði hann 7 mörk í 16 leikjum í þriðju ....
...


 

Skrifstofa

Forráðamenn Knattspyrnudeildar

Eyjólfur Harðarson Formaður
Erla Pálmadóttir Ritari
Elínborg Ólafsdóttir Gjaldkeri
Valgeir Ásgeirsson (Meðstjórnandi)
Halldór Jónsson Meðstjórnandi
Steinar Logi Hilmarsson Unglingaráð
   
Ólafur Jósefsson Yfir þjálfari yngri fl.
....óskast..! Vefumsjón




Tilkynningar

19. mars 2012 | 08:44





Á Döfinni

19. maí 2012 | 16:00


Hamar - Völsungur í 2.deild Ísl.móts á Grýuvelli kl. 16.00
20. maí 2012 | 14:00


2.fl.karla Íslandsmót  Hamar - Sindri á Grýluvelli kl. 14.00
24. maí 2012 | 20:00


Afturelding - Hamar í 2.deild Íslandsmótsins á Varmárvelli kl. 20.00
28. maí 2012 | 14:00


2.fl. Ísl.mót  Hamar - HK/Ýmir á Grýluvelli kl.14.00
31. maí 2012 | 20:00


Hamar - Reynir S. Íslandsmót 2.deild á Grýluvelli kl. 20.00



Íþróttafélagið Hamar, kennitala: 620492-2569