28. janúar 2010 | 12:39 /
Fimleikadeild

Rakel Rós fimleikakonu Hamars árið 2009



Í ár tilnefnum við Rakel Rós Friðriksdóttir dóttir hjónanna Þóreyjar Guðlaugsdóttur og Friðriks Friðrikssonar sem fimleikakonu Hamars 2009. Rakel er fædd 1. Janúar 1996.

Þrátt fyrir ungan aldur á Rakel langan feril að baki sér bæði í fimleikum og öðrum íþróttagreinum. Hún er mikil íþróttakona og er óhætt að segja að hún sé ein af lykilmanneskjum í fimleikaliðinu sínu. Rakel stendur sig mjög vel á öllum áhöldum, leggur sig ávallt 100% fram og gerir sitt allra besta að hverju sinni. Hún er traustur liðsmaður og sýnir gott fordæmi í æfingasal.

Síðasta ár var mjög gott hjá Rakel, hún bætti sig töluvert á öllum áhöldum og er óhrædd að prófa nýjar og erfiðari æfingar.
Rakel keppti á Íslandsmóti í almennum fimleikum sem haldið var á Selfossi í nóvember, þar stóð hún sig frábærlega og  varð í 2. sæti á stökki og  í 7. sæti í heildina.
Hópurinn hennar hefur staðið sig með prýði á hópfimleikamótum á árinu, þær urðu í 1.sæti í sínum flokki (4. Flokki) á HSK mótinu og í 2. Sæti á Reykjavík international svo eitthvað sé nefnt.

Við vonum að Rakel haldi áfram að standa sig vel eins vel og hún hefur gert og haldi áfram að vera fyrirmynd yngri iðkenda. Framtíðin er björt hjá þessari glæsilegu fimleikastelpu og við óskum henni alls hins besta í framtíðinni.

Fyrir hönd, Fimleikadeild Hamars
Sara Heimisdóttir, yfirþjálfari.




Íþróttafélagið Hamar, kennitala: 620492-2569