Hafsteinn er lykilmaður í liði Hamars sem sigrað hefur öll sundmót HSK að tveimur undanskyldum frá hausti 2004. Hann varð í öðru sæti í 200m. fjórsundi í 15-18 ára flokki á Unglingalandsmótinu í sumar. Hafsteinn varð í fyrsta eða öðru sæti í þeim greinum sem hann keppti í á HSK mótum ársins. Framfarir Hafsteins hafa verið stöðugar í ár, bæði tímar og tækni mun betri en í fyrra. Hafsteinn er mikill leiðtogi og fyrirmynd yngri sundmanna deildarinnar. Hann er mjög duglegur við að aðstoða við þjálfun yngri krakkana. Hafsteinn er gríðarlega samviskusamur, mætir á allar æfingar sem eru 6 sinnum í viku og leggur sig 110% fram. Þess má geta að Hafsteinn æfir líka körfubolta og mér sýnist að því betur sem hann æfir sundið því betur gengur honum í körfunni. Hafsteinn er einn af þessum íþróttamönnum sem alla þjálfara dreymir um, hefur mikla líkamlega og andlega burði til að takast á við hvaða æfingar sem maður leggur fyrir hann og gera það mjög vel.
F.h. sunddeildar Hamars
Magnús Tryggvason þjálfari