
Það var fjörugur leikur Hamars/FSu og Grindavíkur í stúlknaflokki í kvöld þar sem Hamar/FSu unnu í framlengdum leik 67-59. Ljóst er að stelpurnar keppa í úrslitum við Njarðvík helgina 24-25.febrúar nk. Til hamingju með þetta stelpur.
Dagný Lísa Davíðsdóttir (U-16) og Marín Laufey Davíðsdóttir (U-18) voru einnig að fá þau skilaboð að þær hafa verið valdar í 12 manna hóp í sínum aldursflokk. Reyndar er Dagný gjaldgeng í U-15 landsliðið en engu að síður valin í U-16. Marín er á 17 ári þannig að hún er einnig að glíma við sér eldri stelpur og vön því!
Að lokum aðeins að mfl. karla í körfunni en þeir gerðu sneipuför austur og töpuðu fyrir Hetti í kvöld 84-70 og ekki gott mál. Svavar Páll var ekki með en nýr kani var með að þessu sinni (C.Wooten) en Hattarmenn betri allan tímann.
Hamar unnu ÍA í 1.deild karla á föstudagskvöldið 87-78 eftir að hafa leitt allan tímann og við það styrktu strákarnir stöðu sína varðandi úrslitakeppnina þar sem þeir sitja nú í 3.sæti með 16 stig og næst leikur við Hött á útivelli. Á föstudaginn voru stóru mennirnir í okkar liði að gera góða hluti, Raggi með 11 stig/12 fráköst og Svavar með 19 stig/10 fráköst. Mest skoraði þó Louie sem skroaði 24 stig, þar af 16 á 8 mínútna kafla í 2.leikhluta. Breiddin var mun meiri hjá Hamri og einnig gaman að sjá Hjalta Val inn á dúknum aftur eftir meira en árs fjarveru eftir krossbandaslit!
Stelpurnar bættu svo um betur í dag og unnu KR á útivelli 69-72 eftir að hafa leyft KR að halda 1-10 stiga forustu fyrri hluta leiksins en það sama má segja um Hamars-stelpur líkt og strákana að þær sýndu meiri breidd en stórveldi KR og spiluðu á fleiri leikmönnum. Murphy skoraði 22 stig /5 fráköst og Katherine bætti um betur með 26 stig/12 fráköst/4 stoðsendingar og 4 stolna bolta.
Nánari tölfræði inn á www.kki.is

|
Ólöf Úlfarsdóttir, badm. |
|
|
Valdimar Hafsteinsson, blak |
|
|
Steinunn Þorfinnsdóttir, fimleikad. |
|
|
Lárus Ingi Friðfinnsson, karfa |
|
|
Guðrún Hafsteinsdóttir, sund |
|
|
Eyjólfur Valgeir Harðarson, knattsp. |






































































