
Fyrsti leikur Hamars í Eden æfingamótinu var í kvöld gegn FSu. Strákarnir stóðu sig ágætlega og sigruðu nokkuð örugglega með um 25 stiga mun. Margir leikmenn voru í hópnum og menn reyndir óspart. Verður gaman að fylgjast með liðinu í framhaldinu.
Nýtt dreifiblað með nýja stundatöflu og tilboðum hefur litið dagsins ljós.
Dreifiblað
Meistaraflokkur Hamars átti ekki velgengni að fagna á tveimur erfiðum útivöllum í seinustu viku. Þriðjudaginn 10 ágúst var haldið á Ísafjörð og leikið við BÍ/Bolungarvík þar lauk leik með sigri heimamanna 3-1. Síðar í vikunni var farið austur á land og spilað við Hött á Egilstöðum. Skemmst er frá að segja að Hamarsmenn áttu ekki erindi sem erfiði þar og töpuðu 5-0. Nú er að girða sig í brók og taka hressilega á móti Víði í næsta leik, á blómstrandi dögum í Hveragerði. Sá leikur getur skipt sköpum um fallsæti deildarinnar en einungis tvö stig skilja Hamar frá liðunum sem þar sitja.
Knattspyrnudeild Hamars hefur tekið ákvörðun um að stofna 2. flokk karla fyrir næsta keppnistímabil! Þetta eru stór tíðindi fyrir Hamar og bæjarfélagið því 2. flokkur hefur ekki áður verið til staðar í Hveragerði. Upp úr 3. flokki eru að ganga margir efnilegir knattspyrnumenn sem nauðsynlegt er að halda vel utanum og við vonum að leikmenn sem leitað hafa í önnur félög undanfarin ár, eða hafa hætt, snúi aftur til baka. Allir leikmenn sem fæddir eru á árunum 1992, 1993 og 1994 eru gjaldgengir, en þar fyrir utan munu leikmenn U-23 liðsins fá að æfa með flokknum, auk einhverra yngri leikmanna. Það er von okkar að með þessu móti fáum við fleiri Hvergerðinga upp í meistaraflokk til að leika með aðalliði félagsins í framtíðinni. Flokkurinn, sem hefur æfingar í september, tekur þátt í Íslandsmót KSÍ og verður rekinn í nánu samstarfi við 2. deildarlið Hamars og fastlega má búast við að efnilegir leikmenn fái tækifæri á að spreyta sig með meistaraflokki.
|
Ólöf Jónsdóttir, badm. |
|
|
Valdimar Hafsteinsson, blak |
|
|
Steinunn Þorfinnsdóttir, fimleikad. |
|
|
Lárus Ingi Friðfinnsson, karfa |
|
|
Guðrún Hafsteinsdóttir, sund |
|
|
Valgeir Ásgeirsson, knattsp. |






































































