Steinunn er blakmaður Hamars 2009


Blakmaður ársins hefur verið valinn Steinunn Björnsdóttir .  Hún er 36 ára gömul og hefur verið leikmaður Hamars um árabil.  Steinunn er Selfyssingur sem fór að æfa blak með Hamri árið 1994 og hefur stundar íþróttina vel allar götur síðan.

 

Steinunn tók þátt í öllum mótum Hamars á seinustu leiktíð. En kvennalið Hamars tók þátt í Íslandsmóti 3. deildar, HSK mótum og Öldungamóti BLÍ á Seyðisfirði. Auk þess sem Steinunn var liðsmaður HSK á Landsmóti UMFÍ á Akureyri í sumar.

 

Steinunn er mikilvægur hlekkur í kvennaliði Hamars, byrjaði sem kantsmassari en spilar nú sem uppspilari.  Hún er góður félagi, einstaklega ljúf að eðlisfari en jafnframt metnaðargjörn fyrir sjálfa sig og liðið sem hún tilheyrir.   Steinunn er vel að titlinum komin og hefur margoft sýnt það og sannað á undanförnum árum að þar fer góður íþróttamaður.

 

Blakdeild  Hamars óskar  til hamingju með titilinn.




Íþróttafélagið Hamar, kennitala: 620492-2569