Aðalfundur Hamars var haldinn 21. febrúar 2010 og var fundurinn nokkuð hefðbundinn. Þegar skýrsla formanns (Guðríður Aadnegard) og reikningar 2009 höfðu verið samþykktar var gengið til kosninga. Núverandi stjórn gaf kost á sér til áframhaldandi setu og þar sem engin mótframboð bárust var stjórnin Hamars endurkosin:
Formaður: Guðríður Aadnegard.
Meðstjórnendur: Valdimar Hafsteinsson, Anton Tómasson, Elín Sesselja Guðmundsdóttir og Kent Lauridsen.
Eftir stjórnarkosningar var lagt fram erindi frá Hlaupahópnum um aðild að Hamri. Erindinu var tekið fagnandi og innganga í Hamar var samþykkt einróma. Auðunn Guðjónsson gaf ekki kost á sér sem skoðunarmaður reikninga þar sem hann hefur tekið að sér stöðu gjaldkera hjá Badmintondeildinni og var honum þakkað langt og gott starf skoðunarmanns. Helga Hassing gaf kost á sér áfram sem skoðunarmaður og mun fulltrúi frá Hveragerðisbæ taka að sér skoðun reikninga íþróttafélagsins í stað Auðuns.
Borin var fram tillaga um að Íþróttafélagið blandi sér meira í umræðuna um íþróttahús í Hveragerði og myndi skýra stefnu um uppbyggingu og staðsetning íþróttamannvirkja.
Eftir aðalfundinn var næsta mál á dagskrá að heiðra íþróttamann Hamars 2009. Bjarndís Helga Blöndal hefur verið valinn íþróttamaður Hamars 2009.
Eftir verðlaunaafhendingu var boðið í kaffiveislu og yfir borðum sungu og spiluðu nokkrir nemendur Margrétar Stefánsdóttur.