Þriðjudaginn 30. desember veitti Hveragerðisbær afreksfólki í íþróttum viðurkenningu fyrir unnin afrek á árinu og útnefndi íþróttamenn Hveragerðis. Hafrún Hálfdánardóttir fékk viðurkenninguna íþróttakona Hveragerðis fyrir körfuknattleik og Hafsteinn Valdimarsson viðurkenninguna íþróttamaður Hveragerðis fyrir blakiðkun.
Eftirtaldir aðilar fengu viðurkenningu fyrir íþróttaiðkun sína:
Ágústa Gísladóttir fyrir fimleika
Bjarndís Helga Blöndal fyrir badminton
Gunnar Marel Einarsson fyrir golf
Hafrún Hálfdánardóttir fyrir körfuknattleik
Hafsteinn Davíðsson fyrir sund og körfuknattleik
Hafsteinn Valdimarsson fyrir blak
Jan Hinrik Hansen fyrir badminton
Jenný Harðardóttir fyrir körfuknattleik
Kjartan Sigurðsson fyrir knattspyrnu
Kristján Valdimarsson fyrir blak
Oddur Ólafsson fyrir hestaíþróttir og körfuknattleik
Ragnar Á. Nathanaelsson fyrir körfuknattleik
Karlalið Körfuknattleiksdeildar Hamars fær sérstaka viðurkenningu fyrir að vinna sæti í úrvalsdeild KKÍ síðastliðið vor og mun afhendingin fara fram í fyrsta heimaleik liðsins þann 10. janúar næstkomandi.
Íþróttafélagið Hamar óskar verðlaunahöfum til hamingju með viðurkenningarnar.