23. febrúar 2009 | 00:00 /
Aðalstjórn

Fanney Lind íþróttamaður Hamars 2008


Á aðalfundi Íþróttafélagsins Hamars, sunnudaginn 22 feb. var Fanney Lind Guðmundsdóttir körfuknattleikskona krýnd íþróttamaður Hamars 2008.  Fanney er lykilleikmaður í meistaraflokksliði Hamars sem hefur verið í baráttu í efri hluta IcelandExpress deildarinnar í vetur. Fanney var valin í íslenska landsliðið og fór með því til keppni á Írlandi og Svartfjallalandi á síðasta ári.  Fanney var auk þess valinn dugnaðarforkurinn í IcelandExpressdeildinni eftir fyrri hluta deildarkeppninnar í vetur.






















Auk þess voru veittar voru viðurkenningar fyrir íþróttamann hverrar deildar. Eftirtaldir fengu viðurkenningar:

Íris Eyþórsdóttir Fimleikamaður Hamars
Sölvi Örn Sölvason  Knattspyrnumaður Hamars
Fanney Lind Guðmundsdóttir Körfuknattleiksmaður Hamars
Laufey Rún Þorsteinsdóttir  Sundmaður Hamars
Bjarndís Helga Blöndal  Badmintonmaður Hamars
Óskar Hauksson   Blakmaður Hamars

 




Íþróttafélagið Hamar, kennitala: 620492-2569