Á aðalfundi Íþróttafélagsins Hamars, sunnudaginn 3. mars 2012 var Marín Laufey Davíðsdóttir, körfuknattleikskona Hamars, krýnd íþróttamaður Hamars ársins 2012. Marín hefur leikið fyrir meistaraflokk Hamars í þrjú tímbil, þrátt fyrir ungan aldur, og hefur staðið með mikilli prýði. Hún leikur sem bakvörður og er einn af máttarstólpum liðsins. Auk Marínar voru útnefnd íþróttamenn hverrar deildar og sú nýbreytni tekin upp að útnefna sjálfboðaliða Hamars sem að þessu sinni var valinn Arnar Geir Helgason. 
Íþrótta- og fjölskyldudagur Íþróttafélagsins Hamars og Hvergerðisbæjar tókst mjög vel síðastliðinn föstudag og voru fjölmargar fjölskyldur sem lögðu leið sína í Hamarshöll til að skemmta sér í leikjum, þrautum og íþróttum saman. Mikil ánægja var með daginn og verður fjölskyldudagurinn endurtekinn aftur í haust.
Gísli Páll Pálsson, framkvæmdarstjóri þvottahúss Grundar og Áss og Pálína Sigurjónsdóttir, skrifstofustjóri, færðu íþróttafélaginu Hamri veglega boltagjöf og tók Hjalti Helgason formaður Hamars við gjöfinni og færði þeim þakkir fyrir.
Stjórn Hamars og míf nefnd Hveragerðisbæjar þakka þjálfurum íþróttafélagsins og golfklúbbsins fyrir þeirra störf og öllum gestum sem lögðu leið sína í höllina. (sjá nánar heimasíðu Hveragerðisbæjar).

Íþrótta- og fjölskyldudagur Hamars og Hveragerðisbæjar verður haldinn föstudaginn, 1. febrúar n.k. frá kl. 16.30-18.30, í Hamarshöllinni. Finnum íþróttaföt fjölskyldunnar og skemmtum okkur saman. sjá nánar
Haldinn var fundur meðal forsvarsmanna deilda, þjálfara og Hveragerðisbæjar um öryggisatriði í Hamarshöllinni nú þegar verið er að taka mannvirkið í notkun. Í meðfylgjandi skjölum eru atriði sem allir sem starfa og æfa í Höllinni eru beðnir að kynna sér vandlega. Forstöðumaður Hamarshallar er Steinar Logi Hilmarsson.
Í tilefni 20 ára afmælis Íþróttafélagsins í mars var ákveðið að gefa út afmælistimarit sem spannar sögu félagsins. Kosin var ritnefnd sem í sátu, Njörður Sigurðsson, Álfhildur Þorsteinsdóttir og Hjörtur Sveinsson. Um er að ræða 40 síðna blað með ýmsum fróðleik um deildir félagsins, viðtöl og myndir úr starfinu. Blaðið kom úr prentun í gær og var því fagnað með útgáfuhófi í bókasafni Hveragerðis. Stjórn Iþróttafélagsins þakkar ritnefnd, ásamt öllum þeim sem lögðu blaðinu lið með efni eða öðrum hætti. |
Hjalti Helgason, Formaður |
|
|
Friðrik Sigurbjörnsson, gjaldkeri |
|
|
Valdimar Hafsteinsson, ritari | |
|
Hallur Hróarsson, meðstjórnandi |
|
| Erla Pálmadóttir, meðstjórnandi | |
| ...Nánar |






































































