Mikið fjör var á sumardaginn fyrsta þegar fagnað var 20 ára afmæli Hamars.
Leikurinn við KR var eins og flestir leikir hjá kvennaliðinu spennandi frá upphafi til enda. Því miður voru úrslitin ekki alveg eins og vonast var eftir en það er engu síður samt skemmtilegt að rifja upp leikinn með því að skoða nokkrar fínar myndir.
Í dag fór fram leikur Hamars og Vals í IE-deild kvenna. Leikurinn átti að fara fram í síðustu viku en þá var honum frestað.
Hamar gerði sér lítið fyrir og sigraði Aldursflokkamót HSK fimmta árið í röð nú um helgina.
Knattspyrnudeild Hamars í Hveragerði auglýsir eftir knattspyrnuþjálfara fyrir 1 – 2 yngri flokka deildarinnar. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Þessa dagana er æft innahúss í íþróttahúsi bæjarins, en í vor færast allar æfingar út á gras-æfingasvæði.
Möguleiki er á áframhaldandi starfi næsta haust þegar æfingar hefjast í nýrri, glæsilegri og upphitaðri knattspyrnuhöll í Hveragerði.






































































