1. Iðkendur mæti 10 mínútum áður en æfing hefst og eru tilbúnir þegar æfing hefst.
2. Iðkendur bíði inní búningsklefa (stilltir og prúðir) þar til þjálfari sækir þá.
3. Iðkendum er ekki heimilt að fara úr salnum, nema með leyfi þjálfarans.
4. Iðkendum er aðeins heimilt að vera í salnum á æfingatíma. (Þeim er skylt að bíða inní búningsklefa þar til þjálfarinn sækir þá og fari úr salnum að lokinni æfingu í fylgd með þjálfara.)
5. Foreldrum er heimilt að fylgjast með æfingu frá áhorfendastúkum. Salurinn er aðeins ætlaður iðkendum og þjálfurum. (Þetta á einnig við um yngstu hópana)
6. Ef iðkendur sýna ósættanlega hegðun á æfingartíma munu þjálfarar hiklaust hafa samband við foreldra og greina frá hegðuninni. Foreldrum er þá skylt að sækja iðkandann samstundis.
Ef næstu fjórar reglur eru brotnar, þarf sá hinn sami að sitja hjá á æfingunni.
7. Iðkendur mæti snyrtilegir til fara og í viðeigandi íþróttafatnaði (T.d fimleikafatnaður). Skartgripir eru ekki leyfðir sem og gallabuxur eða fatnaður sem eykur slysahættu – t.d. víður fatnaður.
8. Iðkendur mæti með teygju í hárinu. (Þeir sem eru með stutt hár heyra ekki undir þessa reglu.)
9. Tyggjó, nammi eða önnur matvæli eru ekki leyfð á æfingartímum. Vatnsbrúsar eru leyfðir með samkomulagi við þjálfara.
10. GSM símar og önnur samskiptatæki eru ekki leyfð á æfingum né í klefum. Slökkt skal vera á símanum, eða hann skilinn eftir heima. Myndavélar eru aðeins leyfðar með samkomulagi við þjálfara.