Laugardaginn 4. apríl fór fram árlegt Kjörís mót Hamars í blaki. Mótið er löngu orðinn fastur liður í starfi Hamars og haldið eins og undanfarin ár í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi. Að þessu sinni mættu 21 lið til keppni og var leikið í tveim deildum kvenna og einni deild hjá körlum. Að venju fengu allir þátttakendur ís í mótslok og blómaverðlaun voru veitt fyrir fyrsta og annað sætið í deildunum. Nánari úrslit má sjá hér á blak.is.
Karlalið Hamars tók þátt í blakmóti KA á Akureyri dagana 21. -22. nóvember. Tíu lið voru í karlaflokki og sigraði lið KA, Fylkir var í öðru sæti og Hamar í 3. sæti.
Fyrsta umferð af þremur í 3. deild kvenna fór fram um helgina í Mosfellsbæ. Hamar vann 5 leiki af 6 en tapaði einungis fyrir Víkingi Ól. 1-2. Hamar er því í toppbaráttunni eftir þessa fyrstu umferð ásamt Sjörnunni C og Víkingi Ól.
Daddamót blakdeildar var haldið í fjórða sinn föstudaginn 28. des. í Hveragerði. Mættir voru til leiks um 26 keppendur og var skipt í 4 lið og spilað sleitulaust þar til sigurvegari fannst.
Fyrirliðar að þessu sinni voru: Þorvaldur Snorrason fyrirlið Bjarsýnna, Sverrir Geir Ingibjartsson fyrir Svartsýna, Íris fyrir Víðsýna og Bryndís Ól fyrir Þröngsýna. Lið Bjartsýnna bar sigur úr býtum það þessu sinni.

Karlalið Hamars lék við HK b í 2. deild Íslandsmótsins í gærkvöldi. Skemmst er frá að segja að Hamarsmenn lögðu gestina í 3 hrinum gegn 1. Úrslit hrina urðu sem hér segir, 22-25, 26-24, 25-17, 32-30.
Fyrri hluti bikarkeppni BLÍ verður haldin helgina 27.-28. okt. í íþróttahúsinu Austurbergi. Þar mun Hamar etja kappi við Íslandsmeistara Stjörnunnar, KA og Hrunamenn. Spilaðar eru tvær umferðir í tveimur riðlum og tvö efstu liðin fara í undanúrslit í mars. Ljóst er að feðgar munu mætast í leiknum þar sem Hamar mætir KA en Hafsteinn og Kristján Valdimarssynir sem leika með KA mæta föður sínum í Hamri.| Valdimar Hafsteinsson formaður | |
| Hugrún Ólafsdóttir gjaldkeri | |
| Jón Ólafur Valdimarsson þjálfari | |
| Afgreiðsla íþróttahúss | 483-4348 |






































































