05. apríl 2009 | 00:00 /
Laugardaginn 4. apríl fór fram árlegt Kjörís mót Hamars í blaki. Mótið er löngu orðinn fastur liður í starfi Hamars og haldið eins og undanfarin ár í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi.  Að þessu sinni mættu 21 lið til keppni og var leikið í tveim deildum kvenna og einni deild hjá körlum. Að venju fengu allir þátttakendur ís í mótslok og blómaverðlaun voru veitt fyrir fyrsta og annað sætið í deildunum. Nánari úrslit má sjá hér á blak.is.

23. nóvember 2008 | 23:00 /
Karlalið Hamars tók þátt í blakmóti KA á Akureyri dagana 21. -22. nóvember.   Tíu lið voru í karlaflokki og sigraði lið KA, Fylkir var í öðru sæti og Hamar í 3. sæti. 

02. nóvember 2008 | 00:00 /
Fyrsta umferð af þremur í 3. deild kvenna fór fram um helgina í Mosfellsbæ. Hamar vann 5 leiki af 6 en tapaði einungis fyrir Víkingi Ól. 1-2.  Hamar er því í toppbaráttunni eftir þessa fyrstu umferð ásamt Sjörnunni C og Víkingi Ól.

02. janúar 2008 | 23:38 /

Daddamót blakdeildar var haldið í fjórða sinn föstudaginn 28. des. í Hveragerði. Mættir voru til leiks um 26 keppendur og var skipt í 4 lið og spilað sleitulaust þar til sigurvegari fannst.
Fyrirliðar að þessu sinni voru:  Þorvaldur Snorrason fyrirlið Bjarsýnna, Sverrir Geir Ingibjartsson fyrir Svartsýna, Íris fyrir Víðsýna og Bryndís Ól fyrir Þröngsýna.  Lið Bjartsýnna bar sigur úr býtum það þessu sinni.


04. desember 2007 | 12:00 /

Karlalið Hamars lék við HK b í 2. deild Íslandsmótsins í gærkvöldi.  Skemmst er frá að segja að Hamarsmenn lögðu gestina í 3 hrinum gegn 1.   Úrslit hrina urðu sem hér segir, 22-25, 26-24, 25-17, 32-30.


23. október 2007 | 09:50 /
Fyrri hluti bikarkeppni BLÍ verður haldin helgina 27.-28. okt. í íþróttahúsinu Austurbergi.  Þar mun Hamar etja kappi við Íslandsmeistara Stjörnunnar, KA og Hrunamenn.   Spilaðar eru tvær umferðir í tveimur riðlum og tvö efstu liðin fara í undanúrslit í mars.  Ljóst er að feðgar munu mætast í leiknum þar sem Hamar mætir KA en Hafsteinn og Kristján Valdimarssynir sem leika með KA mæta föður sínum í Hamri.


Skrifstofa


Valdimar Hafsteinsson formaður
Hugrún Ólafsdóttir    gjaldkeri

Björn Þór Jónsson 
þjálfari

Afgreiðsla íþróttahúss 483-4348




Tilkynningar

20. október 2006 | 11:22


Blakarar eru hvattir til að mæta á allar æfingar og  gera ávallt sitt besta.

 





Á Döfinni




Íþróttafélagið Hamar, kennitala: 620492-2569