05. mars 2013 | 09:10 / Blakdeild

Aðalfundur blakdeildar var haldinn 24. jan. 2013 í aðstöðuhúsinu við Grýluvöll. Formaður var endurkjörinn Valdimar Hafsteinsson og Haraldur Örn BJörnsson var útnenfndur blakmaður Hamars, 2012. Sjá má nánar um aðalfundinn í eftirfarandi skjölum:

Skýrsla stjórnar 2012
Ársreikningur 2012
Haraldur Örn - Blakmaður Hamars 2012
Aðalfundargerð 2013-01-24


06. nóvember 2012 | 08:30 / Blakdeild
Hin þroskaða blaklið Hamars gerði sér lítið fyrir í fyrsta leik Íslandsmótsins í 2. deild að sigra ungviðið í HKb. Leikurinn fór illa af stað fyrir Hamarsmenn sem voru lengi í gang og töpuðu fyrstu tveimur hrinunum. Þá fór gamla díslilvélin að malla og Hamar vann næstu þrjár hrinur og þar með leikinn 3-2.  Góð byrjun hjá Hamri sem mætir Fylki í næsta leik á útivelli.

05. nóvember 2012 | 15:59 / Blakdeild
Kvennalið Hamars tók þátt í fyrstu turneringu af þremur í Íslandsmóti 4. deildar á Laugarvatni um helgina. Liðið lék 5 leiki, sigraði Álftanes b og Laugdæli en tapaði fyrir HK f, Dímon og Snæfelli. Ágætur árangur hjá stelpunum.

25. september 2012 | 00:00 / Blakdeild
Björn Þór Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari blakliða Hamars, kvenna og karla, veturinn 2012-2013.  Björn Þór er Hamarsmönnum að góðu kunnur en hann hefur leikið með karlaliðinu undanfarin ár.  Björn hefur þegar hafið störf og mikil gróska er þegar farin að sjást í starfi hans, þar sem mikil fjölgun iðkennda er í kvennaflokki deildarinnar. Býður blakdeild Hamars Björn Þór velkominn til starfa.

25. júní 2012 | 09:41 / Blakdeild
Nú er verið að leggja lokahönd á strandblakvöll í Hveragerði. Völlurinn er staðsettur við hlið sundlaugarinnar í Laugaskarði á skjólsgóðum og fallegum stað. Mun hann án efa verða lyftistöng þessarar ört vaxandi íþróttar á Íslandi.  

05. mars 2012 | 14:00 / Blakdeild

Hugrún Ólafsdóttir tók á móti viðurkenningunni, blakmaður Hamars á aðalfundi Íþróttafélagsins í gær. Hugrún er vel að titlinum komin og hefur einnig verið tilnefnd blakmaður HSK. Til hamingju með tilnefningarnar, Hugrún. 



Aðal fólkið


Valdimar Hafsteinsson formaður
Hugrún Ólafsdóttir    gjaldkeri

Björn Þór Jónsson 
þjálfari

Afgreiðsla íþróttahúss 483-4348




Tilkynningar
20. október 2006 | 11:22





Á Döfinni




Íþróttafélagið Hamar, kennitala: 620492-2569