Þriðjudaginn 30. desember voru íþróttamönnum í Hveragerði veittar viðurkenningar og samhliða fór fram kjör íþróttamanns Hveragerðis. Kristján og Hafsteinn Valdimarssynir fengu viðurkenningu fyrir blakiðkun og þátttöku í blaklandsliði Íslands. Hlaut Hafsteinn einnig viðurkenninguna íþróttamaður Hveragerðis. Hafrún Hálfdánardóttir fékk viðukenninguna íþróttakona Hveragerðis fyrir körfuknattleik. Blakdeild Hamars óskar verðlaunahöfum til hamingju með viðurkenningarnar. 
Mánudaginn 23. nóvember tók Hamar á móti Hrunamönnum í Íslandsmóti 2. deildar. Leikurinn var jafn og spennandi eins og ávallt á milli þessara liða en “Svíagrýlan” var söm við sig og sigruðu Hrunamenn í oddahrinu 2-3.
Hamar sigraði Þrótt örugglega, 3-0 í fyrsta leik vetrarins í 2. deild í blaki. Hamarsmenn tóku leikinn strax í sínar hendur og unnu fyrstu tvær hrinur auðveldlega. Í þriðju hrinu héldu Þróttarar lengi vel í við Hamar en létu undan síga í lokin og játuðu sig sigraða.| Valdimar Hafsteinsson formaður | |
| Hugrún Ólafsdóttir gjaldkeri | |
| Jón Ólafur Valdimarsson þjálfari | |
| Afgreiðsla íþróttahúss | 483-4348 |






































































