Bjarndís Helga Blöndal var valin badmintonmaður Hamars fyrir árið 2009. Skoða umsögn
Þriðjudaginn 29. des. kl 10-14, var hóað til fjölskyldumóts í badminton. Hittust ungir sem aldnir í íþróttahúsinu og skemmtu sér konunglega við keppni og leik. Upphafsmenn að skemmtuninni voru Hallgrímur Óskarsson og Ragnheiður Eiríksdóttir og eiga þau heiður skilinn fyrir skemmtilega uppákomu.
Bjarndís Helga Blöndal og Jakob Fannar Hansen urðu HSK meistarar í kvenna- og karlaflokki á héraðsmóti HSK sem haldið var í Þorlákshöfn á laugardaginn.
Fimm badmintonspilarar hafa verið boðuð til æfinga með Unglingalandsliðinu.





































































