23. apríl 2012 | 13:56 / Aðalstjórn

Fjölmenni mætti í íþróttahúsið á sumardaginn fyrsta til að fylgjast með skemmtiatriðum í tilefni 20 ára afmælis Hamars.
Sjá má myndir frá deginum hér....


13. apríl 2012 | 19:00 / Aðalstjórn

Íþróttafélagið Hamar fagnaði 20 ára afmæli 31. mars á þessu ári. Í tilefni þess verður efnt til afmælisfagnaðar í íþróttahúsinu í Hveragerði fimmtudaginn 19. apríl, sumardaginn fyrsta, kl. 15-17. Ýmislegt verður til skemmtunar og eftirtaldir munu koma fram.

Setning, Hjalti Helgason formaður Hamars
Hátíðarávarp, Eyþór Ólafsson, bæjarfulltrúi.
Fimleikasýning fimleikadeildar.
Tónlistaratriði, Sædís Másdóttir.
Leikþáttur úr Línu Langsokk
Zhumba sýning barna.
Ingó veðurguð tekur lagið
Hreysti og þrautabraut fyrir krakka í umsjón Laugasports

Kaffiveitingar, kaka og ís fyrir krakka.

 

Kynnir: Sævar Helgason

 

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.


12. mars 2012 | 00:00 / Aðalstjórn
Íþróttafélagið Hamar sendi 7 fulltrúa á árlegt HSK-þing sem að þessu sinni var haldið í Brautarholti á Skeiðum.  Nokkrir Hamarsmenn fengu viðurkenningu sem íþróttamenn sinnar greinar innnan HSK. Það voru þau: Imesha Chaturunga fyrir badmington, Hugrún Ólafsdóttir fyrir blak og Íris Ásgeirsdóttir fyrir körfuknattleik. Að auki voru veitt verðlaun fyrir framúrskarandi barna- og unglingastarf og hlaut körfuknattleiksdeild Hamars þá viðurkenningu. Daði Steinn Arnarson veitti viðurkenningunni móttöku fyrir hönd deildarinnar. Þingið tókst vel og var Guðríður Aadnegard endurkjörinn formaður HSK.  

05. mars 2012 | 08:00 / Aðalstjórn
Á aðalfundi Íþróttafélagsins Hamars, sunnudaginn 4. mars 2012 var Íris Ágeirsdóttir, körfuknattleikskona Hamars, krýnd íþróttamaður Hamars ársins 2011.  Íris var fyrirliði og lykilmaður í meistaraflokki Hamars tímabilið 2010-2011. Það tímabil náði Hamar sínum besta árangri þegar kvennaliðið varð deildarmeistari IcelandExpress deildarinnar. Íris hefur svo staðið í stöngu í vetur þar sem hún fór í hjálparstarf til Tansaníu í mánaðartíma og eftir heimkomu drifið félaga sína áfram í baráttunni í deildinni. Auk Írisar voru útnefnd íþróttamenn hverrar deildar. Á aðalfundinum var kjörinn nýr formaður Hamars, Hjalti Helgason. 

21. febrúar 2011 | 00:00 / Aðalstjórn
Á aðalfundi Íþróttafélagsins Hamars, sunnudaginn 20. febrúar 2011 var Oddur Ólafsson, körfuknattleiksmarður Hamars, krýndur íþróttamaður Hamars ársins 2010.  Oddur var lykilmaður í meistaraflokki Hamars tímabilið 2009-2010. Hann var einnig fyrirliði unglingalandsliðs Íslands sem var Norðurlandameistarií Svíþjóð á árinu. Oddur stundar nám í Bandaríkjunum og tóku foreldrar hans, Margrét Stefánsdóttir og Ólafur Hafsteinn Einarsson, við verðlaununum.  Auk Odds voru útnefnd íþróttamenn hverrar deildar.

15. mars 2010 | 09:34 / Aðalstjórn
Guðríður Aadnegard (formaður Hamars) tekur við af Gísla Páli Pálssyni sem formaður HSK. Gísli Páll var búinn að ákveða að draga sig í hlé eftir 7 farsæl ár sem formann HSK og Guðríður mun strax skrá sig í sögubækur HSK þar sem hún verður fyrsta konan til að stjórna HSK í 100 ára sögu sambandsins. Er Guðríði  óskað til hamingju og hún hvött til dáða.


Stjórn íþróttafélagsins Hamars


Guðríður Aadnegaard
Kent Lauridsen

Valdimar Hafsteinsson

Anton Tómasson

Erla Pálmadóttir




Tilkynningar
13. nóvember 2007 | 00:00 /
Tilkynningar

Dósasöfnun


Við viljum benda fólki á að hægt er að skila dósum og plastflöskum í dósakassann okkar á gámasvæðið ef ekki sé hægt að bíða eftir næsta söfnun.



Á Döfinni




Íþróttafélagið Hamar, kennitala: 620492-2569