Á aðalfundi Íþróttafélagsins Hamars, sunnudaginn 21. febrúar 2010 var Bjarndís Helga Blöndal krýnd íþróttamaður Hamars 2009
Aðalfundur Hamars var haldinn 21. febrúar 2010 og var fundurinn nokkuð hefðbundinn. Þegar skýrsla formanns (Guðríður Aadnegard) og reikningar 2009 höfðu verið samþykktar var gengið til kosninga. Núverandi stjórn gaf kost á sér til áframhaldandi setu og þar sem engin mótframboð bárust var stjórnin Hamars endurkosin.
Þriðjudaginn 30. desember veitti Hveragerðisbær afreksfólki í íþróttum viðurkenningu fyrir unnin afrek á árinu og útnefndi íþróttamenn Hveragerðis. Hafrún Hálfdánardóttir fékk viðurkenninguna íþróttakona Hveragerðis fyrir körfuknattleik og Hafsteinn Valdimarsson viðurkenninguna íþróttamaður Hveragerðis fyrir blakiðkun. Íþróttafélagið Hamar óskar verðlaunahöfum til hamingju með viðurkenningarnar.
Hamar hlaut í dag styrk að upphæð kr. 400 þúsund úr minningarsjóði Pálma Gíslasonar fyrrverandi formanns UMFÍ. Styrkurinn er ætlaður í verkefni tengdum umhverfismálum og hefur Hamar í hyggju að koma upp æfingastöðvum fyrir almenning meðfram göngustíg í hlíðum Reykjafjalls. Hamar þakkar UMFÍ og Stellu Guðmundsdóttur, ekkju Pálma, góðan stuðning. Nánar á heimasíðu UMFÍ| Guðríður Aadnegaard | |
| Kent Lauridsen | |
|
Valdimar Hafsteinsson | |
|
Anton Tómasson | |
| Elín Guðmundsdóttir | |






































































